Umsagnarferli vegna umsóknar um rekstrarleyfi til sölu gistingar, Hótel Edda Egilsstöðum

Málsnúmer 202004030

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 314. fundur - 06.05.2020

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir sölu gistingar í flokki IV að hótel Eddu Egilsstöðum. Umsækjandi er Flugleiðahótel ehf, forsvarsmaður Tryggvi Guðmundsson.

Fyrir liggur jákvæð umsögn byggingarfulltrúa fyrir allt að 150 gesti. Einnig jákvæð umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, veitir bæjarstjórn jákvæða umsögn og staðfestir jafnframt að staðsetning staðar sem umsóknin lýtur að, sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segir til um.

Bæjarstjórn bendir á að eldvarnareftirlitið og vinnueftirlitið skila sínum umsögnum beint til sýslumanns.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.