Umhverfis- og framkvæmdanefnd

92. fundur 23. maí 2018 kl. 17:00 - 20:40 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Árni Kristinsson formaður
  • Þórhallur Borgarson varaformaður
  • Guðrún Ragna Einarsdóttir aðalmaður
  • Ester Kjartansdóttir aðalmaður
  • Páll Sigvaldason aðalmaður
  • Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að eftirfarandi málum yrði bætt við, Tjarnarlandi urðunarstaður, Ráðning fjallskilastjóra og umsókn um byggingarleyfi fyrir geymslu, Uppsölum 2. og verða þau mál númer 17, 18 og 19.

1.Umhverfisviðurkenning

Málsnúmer 201805114

Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur ákveðið að veita Eyþóri Hannessyni viðurkenningu fyrir óeigingjarnt starf hans í þágu umhverfismála.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd þakkar Eyþóri Hannessyni óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins.

Með fórnfúsu starfi í þágu umhverfismála er Eyþór öðrum íbúum góð fyrirmynd.

Freyr Ævarsson verkefnastjóri umhverfismála sat undir þessum lið.

2.Norðvestursvæði Egilsstaðir, deiliskipulag

Málsnúmer 201804035

Deiliskipulag Norðvestursvæðis Egilsstaða tekið til umfjöllunnar vegna áforma um uppbyggingu á lóðinni Lagarás 21 - 33.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til við bæjarstjórn að farið verði í breytingar á deiliskipulagi Norðurvestursvæðis Egilsstaða þannig að byggingarreitur við Lagarás 21-33 verði stækkaður til norðurs og austurs og heimilt verði að byggja allt að tveggja hæða byggingu.

Jafnframt er vakinn athygli á skilgreiningu lóðarinnar í aðalskipulagi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Varmadælulausn í Brúarásskóla

Málsnúmer 201805116

Fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd liggur tillaga að orkusparandi aðgerðum vegna húshitunar í Brúarásskóla.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að sótt verði um styrk til Orkusjóðs vegna áforma um uppsetningu á varmadælu í Brúarási.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Undir þessum lið sátu Björgvin Steinar Friðriksson frá Verkráð ehf. og Kjartan Róbertsson yfirmaður eignarsjóðs.

4.Ósk um umsögn vegna starfsleyfi fyrir nuddstofu, Blómvangi 2

Málsnúmer 201805117

Fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd liggur fyrir ósk frá HAUST um umsögn vegna starfsleyfis fyrir nuddstofu að Blómvangi 2.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemd við starfsleyfið en bendir HAUST á að leita umsagnar húsfélagsins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Selskógur deiliskipulag

Málsnúmer 201606027

Lögð er fram samantekt frá Teiknistofunni AKS. varðandi deiliskipulag Selskógar. Umhverfis- og framkvæmdanefnd lagði til á 89. fundi sínum að erindið fengi umfjöllun hjá þeim nefndum sveitarfélagsins sem að málið varðar. Nefndin óskaði eftir því að ábendingar bærust fyrir 15. maí, fyrir liggja umsagnir frá Ungmennaráði, Íþrótta- og tómstundanefnd og Atvinnu- og menningarnefnd.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að hafin verði breyting á deiliskipulagi Selkógar. Breytingin verði unnin samkvæmt sviðsmynd 3. í stefnumörkun um Selskóg.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Breyting á Svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2012-2024

Málsnúmer 201805075

Fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd liggur beiðni frá Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar um umsögn á Skipulags- og matslýsingu vegna breytingar á Svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2012 - 2024.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemd við matslýsinguna.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Kringilsárrani - Stjórnunar- og verndaráætlun 2017 - 2026

Málsnúmer 201805104

Lögð fram til kynningar Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Kringilsárrana.

Lagt fram til kynningar.

8.Umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá úr landi Ekkjufellssels

Málsnúmer 201805107

Fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd liggur umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá úr landi Ekkjufellssels undirrituð af Hilmari Gunnlaugssyni fyrir hönd Vök-Baths ehf.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið.

9.Ósk um samþykki á nafni á jörð í dreifbýli

Málsnúmer 201805108

Fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd liggur erindi frá Ástu Sigfúsdóttir og Kjartani Reynissyni þar sem óskað er eftir að sveitafélagið samþykki nafnið Leyningur á nýbýli þeirra Fossgerði lóð 4.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið.

Esther Kjartansdóttir vék af fundi undir þessum lið.

10.Landskipti og sameining lands, Skipalæk 1. og 3

Málsnúmer 201805111

Fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd liggur fyrir erindi frá Þórunni Sigurðardóttir þar sem óskað er eftir að skipta út úr Skipalæk 1 land nr. 157023 landspildu (14,836 ha) og og sameina hana Skipalæk 3 land nr.225834.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið.

11.Umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá, Uppsalir

Málsnúmer 201805112

Fyrir Umhverfis- og framkvæmdnefnd liggur fyrir erindi Kára Helgfell Jónassyni þar sem óskað er skráningu á nýrri landeign í fasteignskrá.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið. Nefndin bendir á að stofnun lóðarinar leysir landeiganda ekki undan kvöðum skipulagsins og breyta þarf deiliskipulagi ef hefja á framkvæmdir á lóðinni.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

12.Malarnáma á Eyvindarárdal

Málsnúmer 201805113

Fyrir Umhverfis- og framkvæmdnefnd liggur erindi frá Steinþóri Guðna Stefánssyni f.h. Austverks ehf. þar sem hann óskar eftir að fá keypta möl úr efnisnámu sveitafélagsins á Eyvindarárdal.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að efnisnáma á Eyvindarárdal verði rekinn af sveitafélaginu fram til áramóta. Skipulags- og byggingarfulltrúa og forstöðumanni Þjónustumiðstöðvar verði falinn umsjón með rekstri námunar.

Samþykkt samhljóð með handauppréttingu.

13.Beiðni um breytingar á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna Kröflulínu 3.

Málsnúmer 201801100

Fyrir umhverfis- og framkvæmdanefnd liggur Skipulags- og matslýsing fyrir tillögu að breyttu Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008 -2028 að aflokinni kynningu.

Ábendingar bárust frá Vegagerðinni og Landgræðslu ríkissins.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði unnin í samræmi við auglýsta lýsingu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

14.Umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga á Ekkjufellsseli fiskþurkun

Málsnúmer 201805115

Fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd liggur fyrir byggingarleyfisumsókn vegna breytinga á húsnæðinu Ekkjufellssel fiskþurkun (Herðir)

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið og felur byggingarfulltrúa það til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

15.Náttúrustofa Austurlands, 2. fundur stjórnar 2018

Málsnúmer 201805076

Fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd liggur fyrir fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands, fundur 2.

Lagt fram til kynningar.

16.Fundargerð 141. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands

Málsnúmer 201805057

Fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd liggur fyrir fundargerð stjórnar Heilbrigðisnefndar Austurlands, fundur 141.

Lagt fram til kynningar.

17.Tjarnarland urðunarstaður - 2018

Málsnúmer 201802045

Fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd liggur tillaga að umhverfismarkmiðum vegna sorpurðunar í landi Tjarnarlands.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir framlögð umhverfismarkmið fyrir urðunnarstaðinn að Tjarnarlandi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Freyr Ævarsson verkefnastjóri umhverfismála sat undir þessum lið.

18.Ráðning fjallskilastjóra

Málsnúmer 201802092

Fyrir nefndin liggur tillaga að ráðningu fjallskilastjóra í Jökulsárhlíð.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að ráða Benedikt Arnórsson sem fjallskilastjóra í Jökulsárhlíð.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Freyr Ævarsson verkefnastjóri umhverfismála sat undir þessum lið.

19.Umsókn um byggingarleyfi fyrir geymslu, Uppsölum 2

Málsnúmer 201805156

Umsókn um byggingarleyfi fyrir geymslu, Uppsölum 2

Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til að umsóknin verði grenndarkynnt fyrir Vegagerðinni og Minjastofnun.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Þar sem þetta er síðast fundur Umhverfis- og framkvæmdanefnd á kjörtímabilinu vill nefndinn þakka samstarfsfólki samvinnuna síðastliðinn fjögur ár.

Fundi slitið - kl. 20:40.