Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs
1.Samþykkt um stjórn og fundarsköp Fljótsdalshéraðs
2.Kosning fulltrúa í embætti, stjórnir og nefndir á vegum Fljótsdalshéraðs
3.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 258
3.2.Fundargerðir byggingarnefndar hjúkrunarheimilis 2014
3.3.Fundargerð stjórnar SSA, nr.7, 2013-2014
3.4.Siðanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga
3.5.Fjármál sveitarfélaga
3.6.Áhrif Kárahnjúkavirkjunar á vatnsborð og grunnvatn á láglendi á Héraði
3.7.Dyrfjöll - Stórurð - Gönguparadís. Umsókn í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða
3.8.Umdæmamörk sýslumanna og lögreglustjóra
3.9.Beiðni um stuðning við starf Hróksins á Grænlandi
3.10.Myndasafn til varðveislu
3.11.Heimildamynd um strand Bergvíkur VE-505 í Vöðlavík
3.12.Skýrsla yfirkjörstjórnar vegna sveitarstjórnarkosninga 2014
3.13.Kortlagning auðlinda í ferðaþjónustu
4.Sumarleyfi bæjarstjórnar
Fundi slitið.
Til máls tóku undir þessum lið í þessari röð. Stefán Bogi Sveinsson, sem lagði fram breytingartillögu. Einnig kynnti hann og lagði fram bókun frá B-listanum. Gunnar Jónsson, Páll Sigvaldason, sem bar fram fyrirspurn. Stefán Bogi Sveinsson, Anna Alexandersdóttir og Gunnhildur Ingvarsdóttir.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Breytingatillaga B-lista við samþykkt um stjórn og fundarsköp Fljótsdalshéraðs:
Bæjarstjórn samþykkir að 6. tl. 47. gr. samþykktarinnar verði felldur brott og númerum annarra töluliða breytt til samræmis við það. Einnig falli á brott sá hluti Fylgiskjals I sem er undir yfirskriftinni Íþrótta- og tómstundanefnd í kaflanum um fastanefndir.
Tillagan borin upp og felld með 6 atkv.meirihluta en 3 fulltrúar minnihluta greiddu henni atkvæði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn Fljótsdalhéraðs samþykkir fyrirliggjandi samþykkt um stjórn og fundarsköp Fljótsdalshéraðs og felur bæjarstjóra að senda samþykktina innanríkisráðuneytinu til staðfestingar.
Samþykkt með handauppréttingu með 6 atkv. meirihluta en 3 fulltrúar minnihluta sátu hjá.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir fyrirliggjandi samþykkt fyrir fræðslunefnd og felur bæjarstjóra að sjá til þess að samþykktin verði aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir fyrirliggjandi samþykkt fyrir atvinnu- og menningarnefnd og felur bæjarstjóra að sjá til þess að samþykktin verði aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins.
Samþykkt með handauppréttingu með 6 atk. meirihluta en 3 fulltrúar minnihluta sátu hjá.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir fyrirliggjandi samþykkt fyrir umhverfis- og framkvæmdanefnd og felur bæjarstjóra að sjá til þess að samþykktin verði aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir fyrirliggjandi samþykkt fyrir íþrótta- og tómstundanefnd og felur bæjarstjóra að sjá til þess að samþykktin verði aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins.
Samþykkt með handauppréttingu með 6 atkv. meirihluta en 3 fulltrúar minnihluta greiddu atkv. á móti.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir fyrirliggjandi samþykkt fyrir jafnréttisnefnd og felur bæjarstjóra að sjá til þess að samþykktin verði aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkir fyrirliggjandi samþykkt fyrir náttúruverndarnefnd og felur bæjarstjóra að sjá til þess að samþykktin verði aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Bókun B-lista vegna nýrrar samþykktar um stjórn og fundarsköp Fljótsdalshéraðs:
Bæjarfulltrúar Framsóknar vísa til fyrri bókunar sinnar á fundi bæjarstjórnar 24. júní og leggjast sem fyrr gegn því að stofnuð verði sérstök íþrótta- og tómstundanefnd í sveitarfélaginu. Við teljum að stofnun nefndarinnar sé í ósamræmi við það sem við töldum megintilgang þeirra nefndabreytinga sem öll framboð komu sér saman um að ráðast í. Það var að auka skilvirkni í nefndastarfi og stjórnsýslu, samræma viðfangsefni nefnda og koma eins og kostur er í veg fyrir skörun á milli þeirra og að síðustu að ná fram fjárhagslegri hagræðingu. Með stofnun íþrótta- og tómstundanefndar liggur fyrir að atvinnu-, menningar- og íþróttafulltrúa er eins og fyrr ætlað að starfa með tveimur nefndum og er verkaskipting þeirra á milli að okkar mati óljós. Ætla má að kostnaður við nefndina verði um ein milljón króna á ári. Þá vekur það athygli að í tillögu meirihlutans er ekki gert ráð fyrir að bæjarfulltrúi sitji í nefndinni, eins og gilt hefur um aðrar fastanefndir.