Skýrsla yfirkjörstjórnar vegna sveitarstjórnarkosninga 2014

Málsnúmer 201406100

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 258. fundur - 27.06.2014

Lögð fram skýrsla yfirkjörstjórnar vegna sveitarstjórnarkosninga 31. maí 2014.

Einnig fylgdu útgefin kjörbréf til kjörinna aðal- og varamanna er skipa sveitarstjórn Fljótsdalshéraðs næsta fjögurra ára kjörtímabil.

Bæjarráð samþykkir að fela skrifstofu- og starfsmannastjóra að koma frumritum kjörbréfa til hlutaðeigandi og sjá til þess að afrit kjörbréfa verði vistuð í skjalageymslu sveitarfélagsins.