Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs
1.Starfsáætlanir nefnda Fljótsdalshéraðs 2018
3.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 417
Málsnúmer 1802015F
3.1
201801001
Fjármál 2018
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir framlagða viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2018, varðandi yfirfærslu á fastafjármunum Fasteignafélags Iðavalla ehf, sem er B-hlutafyrirtæki, yfir í Eignasjóð (A-hluta) Samþykkt að yfirfærsluverð verði í samræmi við fasteignamat á viðkomandi eign sem er reiðhöllin. Um er að ræða ríflega 35 milljóna kr. verðmæti Í samþykktri fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir að yfirfærsluverð væri 15 milljón krónum lægra. Fjárfestingaheimild Eignasjóðs hækkar sem þessu nemur.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir að fela Birni Ingimarssyni umboð til að fara með atkvæði sveitarfélagsins á aðalfundinum.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að selja Rafey ehf Ford Transit ferðaþjónustubíl fatlaðra, á kr. 900.000. Bílinn hyggst Rafey afhenda Knattspyrnudeild Hattar til eignar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Í erindi frá Sambandi ísl. sveitarfélaga kemur fram að Sambandið óskar eftir tilnefningu varamanns frá Fljótsdalshéraði í nefnd sem fjalla á um stofnun Miðhálendisþjóðgarðs.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að tilnefna Sigrúnu Blöndal sem varafulltrúa í umrædda nefnd.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
4.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 418
Málsnúmer 1802020F
4.1
201801001
Fjármál 2018
Bókun fundar
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól kr. 223.000.000, með lokagjalddaga þann 5. desember 2032, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarráð hefur kynnt sér. Bæjarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á hlutdeild Fljótsdalshéraðs í framtíðarlífeyrisskuldbindingum Lífeyrissjóðsins Brúar sem telst verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Birni Ingimarssyni, bæjarstjóra Fljótsdalshéraðs kt. 301254-4079, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. sveitarfélag að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að eftirfarandi fulltrúar muni starfa með fræðslunefnd að rýni að áformum um uppbyggingu leikskóla. Frá bæjarráði Anna Alexandersdóttir og Stefán Bogi Sveinsson, frá umhverfis- og framkvæmdanefnd, samkvæmt tillögu nefndarinnar, Árni Kristinsson og Esther Kjartansdóttir.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Í ljósi 4. töluliðar A-hluta tillögunnar bendir bæjarstjórn Fljótsdalshérað á að hún telur óráðlegt að útiloka allar línulagnir yfir hálendi, eins og þar er gert ráð fyrir. Bæjarstjórn bendir á að í sumum tilfellum má færa rök fyrir því að línulagnir um láglendi geti verið verri kostur með tilliti til sjónrænna áhrifa, heldur en línulagnir um hálendi. Má þar t.d. benda á svæði sunnan Vatnajökuls, sem sum hver eru innan þjóðgarðsmarka. Einnig má benda á að orðið hálendi er ekki frekar skilgreint í tillögunni og að mjög ólík sjónarmið geta átt við um línulagnir yfir mismunandi hálendissvæði.
Samþykkt með handauppréttingu með 8 atkv. en 1 sat hjá (RRI).
-
Bókun fundar
Lagt fram.
5.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 419
6.Atvinnu- og menningarnefnd - 64
Málsnúmer 1802014F
-
Bókun fundar
Fyrir liggur greinargerð frá undirbúningshópi um fræðasetur Jóns lærða og nýtingu læknishúsinu á Hjaltastað og Hjaltalundi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með atvinnu- og menningarnefnd og þakkar undirbúningshópnum fyrir góða greinargerð. Málið verður áfram til umfjöllunar og í vinnslu hjá atvinnu- og menningarnefnd.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lagt fram erindi um svæði, pláss, hús, sem gæti hýst matar- og sveitamarkað á sumrin og Barramarkað fyrir jólin. Erindið var fram borið á bæjarstjórnarbekknum sem haldinn var á Barramarkaðnum 16. desember 2017. Erindinu vísað til atvinnu- og menningarnefndar á fundi bæjarráðs 8. janúar 2018.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með atvinnu- og menningarnefnd og leggur til við umhverfis- og framkvæmdanefnd að skoðað verði hvort reiðhöllin á Iðavöllum geti nýst sem framtíðarhúsnæði fyrir jólamarkað sem fram hefur farið í Barra hingað til. Í því sambandi þarf m.a. að skoða aðkomu og bílastæði við reiðhöllina.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla atvinnu- og menningarnefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Fyrir liggur frá Leikhópnum Lottu, umsókn, dagsett 23. febrúar 2018, um styrk vegna leiksýningar í Valaskjálf.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn að verkefnið verði styrkt um kr. 75.000 sem tekið verði af lið 0581.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
7.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 86
Málsnúmer 1802005F
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Selbrekku. Tillagan er gerð í framhaldi af umfjöllun nefndarinnar um erindi frá eigendum Bjarkasels 16.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að tillagan fái afgreiðslu í samræmi við 2. mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr.
123/2010.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Fyrir fundi liggur verkefnalýsing svæðisskipulags Austurlands.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að Verkefnislýsing svæðisskipulags Austurlands verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Vísað í afgreiðslu á lið 4.7.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Erindi frá David Subhi og Ragnhildi Weisshappel þar sem óskað er eftir breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008 - 2028 ásamt verkefnalýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn verkefnalýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingu í samræmi við 36. gr.
Skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Erindi frá ábúanda Klaustursels þar sem óskað er efir samvinnu um vetrarþjónustu á Efri-Jökuldal.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis-og framkvæmdanefndar hafnar bæjarstjórn þeim hluta erindisins sem snýr að snjómokstri á þjóðvegi um Efri-Jökuldal og Hrafnkelsdal, þar sem snjómokstur á því svæði er í umsjón Vegagerðarinnar sem sér um samninga við verktaka.
Að því er varðar heimreið beinir nefndin því til forstöðumanns Þjónustumiðstöðvar að hann notfæri sér tækjakost bréfritara þegar það á við.
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að teknar verði upp viðræður við Vegagerðina um fyrirkomulag snjómoksturs í dreifbýli og kannað hvort einstök svæði eigi rétt á meiri þjónustu en nú er veitt.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lögð er fram umsókn frá Skógræktarfélagi Austurlands þar sem óskað er eftir skráningu nýrrar landeignar í fasteignaskrá úr landi Eyjólfsstaða, Blöndalsbúð landnúmer 157467.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að skráð sé ný landeign úr landi Skógræktarfélagsins að Eyjólfsstöðum.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Erindi frá Jóni Metúsalem Einarssyni, þar sem óskað er eftir umsögn um byggingaráform.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd og bendir á að þar sem áformin eru ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag getur hún ekki veitt umsögn.
Bæjarstjórn bendir á að í 3. mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er heimild til að víkja frá skilmálum deiliskipulags ef um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðast í engu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla umhverfis- og framkvæmdanefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Fyrir nefndinni liggur samningur milli Fljótsdalshéraðs og Hattar um afnot af íbúð 206 í Útgarði 7.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn framlagðan samning. Bæjarstjórn óskar eftir því að yfirmaður eignasjóðs kynni fyrir nefndinni framvindu samningsins á samningstímanum.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
7.18
201802160
Styrkvegir 2018
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
8.Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 259
Málsnúmer 1802018F
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram.
9.Íþrótta- og tómstundanefnd - 39
Málsnúmer 1802008F
-
Bókun fundar
Lagt fram.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla íþrótta- og tómstundanefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla íþrótta- og tómstundanefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Fyrir liggur erindi af vefnum Betra Fljótsdalshérað þar sem lagt er til að gerð verði ný barnalaug / vaðlaug við sundlaugina á Egilsstöðum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með íþrótta- og tómstundanefnd og tekur vel í erindið og leggur til að málinu verði bætt inn í uppbyggingaráætlun íþróttamiðstöðvarinnar fyrir næstu ár.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Fyrir liggur erindi frá bæjarstjórnarbekknum í Barra 16. desember 2017 þar sem lýst er yfir ánægju með að frítt er í sund fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri á Fljótsdalshéraði. Að auki fram komnar vangaveltur um samning sveitarfélags við fimleikadeild Hattar varðandi þátttöku í kaupum á áhöldum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu íþrótta- og tómstundanefndar samþykkir bæjarstjórn að starfsmaður nefndarinnar myndi starfshóp sem í verði ásamt honum, forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar, fulltrúi fimleikadeildar og yfirmaður Eignasjóðs. Starfshópurinn fari yfir búnað og áhöld til fimleikaiðkunar í væntanlegu fimleikahúsi og komi með tillögu að hvaða tæki og búnaður skuli vera til staðar og hvert eignarhaldið skuli vera. Tillögum starfshópsins verði skilað til nefndarinnar fyrir 15. apríl 2018.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla íþrótta- og tómstundanefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
10.Félagsmálanefnd - 162
Málsnúmer 1802009F
-
Bókun fundar
Lögð var fyrir félagsmálanefnd breytingartillaga á gjaldskrá stuðningsforeldra, þar sem lagt er til að jafna greiðslur til stuðningsforeldra fatlaðra barna við greiðslur til stuðningsforeldra barna á grundvelli barnaverndarlaga.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu félagsmálanefndar samþykkir bæjarstjórn framkomnar tillögur um samhæfða gjaldskrá með þeirri breytingu að gjald vegna vistunar barns í fyrsta flokki sé hærra, eða sem nemur 20.212,- kr./pr sólarhring.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla félagsmálanefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
10.6
201802100
Fjárhagsaðstoð
-
11.Umsókn um rekstrarleyfi til sölu gistingar/Setberg
Fundi slitið - kl. 19:45.
Aðrir sem til máls tóku voru: Stefán Bogi Sveinsson,sem bar fram fyrirspurn, Sigrún Blöndal,Gunnar Jónsson, sem svaraði fyrirspurn og Stefán Bogi Sveinsson.