Bæjarráð Fljótsdalshéraðs

419. fundur 07. mars 2018 kl. 15:30 - 16:00 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Gunnar Jónsson formaður
  • Anna Alexandersdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Stefán Bogi Sveinsson aðalmaður
  • Sigrún Blöndal varaformaður
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason skrifstofu- og starfsmannastjóri
  • Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri
  • Magnús Jónsson
Fundargerð ritaði: Stefán Bragason skrifstofustjóri

1.Ársreikningur 2017

Málsnúmer 201803019

Eftirtaldir bæjarfulltrúar, auk fulltrúa í bæjarráði, sátu kynningu á árreikningi 2017 undir fundi bæjarráðs. Guðmundur Sveinsson Kröyer og Þórður Mar Þorsteinsson.
Kynningin hófst kl. 14:00:

Magnús Jónsson endurskoðandi KPMG, mætti á fundinn og kynnti ársreikning og drög að endurskoðunarskýrslu Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2017. Einnig bætti Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri við upplýsingum og skýringum. Öllum bæjarfulltrúum og fulltrúum nefnda, stóð til boða að sitja kynningu endurskoðanda á ársreikningum.

Endurskoðandi og fjármálastjóri svöruðu einnig fyrirspurnum fundarmanna varðandi ýmsa þætti ársreikningsins. Að lokinni kynningu var þeim þökkuð koman og greinargóðar upplýsingar.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarráð samþykkir að vísa ársreikningi og drögum að endurskoðendaskýrslu fyrir árið 2017, til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Jafnframt er fjármálastjóra falið að senda ársreikninginn til Kauphallarinnar til birtingar þar, að lokinni áritun bæjarráðs og bæjarstjóra, eins og reglur segja til um.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 16:00.