Bókun fundar
Lögð var fyrir félagsmálanefnd breytingartillaga á gjaldskrá stuðningsforeldra, þar sem lagt er til að jafna greiðslur til stuðningsforeldra fatlaðra barna við greiðslur til stuðningsforeldra barna á grundvelli barnaverndarlaga.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu félagsmálanefndar samþykkir bæjarstjórn framkomnar tillögur um samhæfða gjaldskrá með þeirri breytingu að gjald vegna vistunar barns í fyrsta flokki sé hærra, eða sem nemur 20.212,- kr./pr sólarhring.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Fundargerðin lögð fram.