Umhverfis- og framkvæmdanefnd

137. fundur 26. ágúst 2020 kl. 17:00 - 20:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Aðalsteinn Ásmundarson aðalmaður
  • Guðfinna Harpa Árnadóttir varaformaður
  • Benedikt Hlíðar Stefánsson formaður
  • Karl Sigfús Lauritzson aðalmaður
  • Kristjana Sigurðardóttir aðalmaður
  • Freyr Ævarsson starfsmaður
  • Sigurður Jónsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Freyr Ævarsson verkefnastjóri umhverfismála

1.Tímabundin undanþága vegna starfsemi Tónlistarskólans í Fellabæ í kjallarahúsnæði Fellaskóla

Málsnúmer 202006152

Yfirmaður eignasjóðs mætti á fundinn og kynnti uppfærð gögn og afstöðu Brunavarna á Austurlandi til fyrirliggjandi útfærslu á flóttaleið.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd fór yfir bókanir bæjarstjórnar og fræðslunefndar vegna málsins og telur ekki forsendur til að vinna verkefnið áfram að svo stöddu.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.

Gestir

  • Kjartan Róbertsson - mæting: 17:20

2.Miðbær Egilsstaða deiliskipulag 2016

Málsnúmer 201401135

Auglýsingu er lokið frestur til að skila inn umsögnum eða athugasemdum var til 4. ágúst. Ein athugasemd var tekin fyrir á síðasta fundi nefndarinnar. Nú liggur fyrir umsögn Minjastofnunar.

Skipulags- og byggingarfulltrúi fundaði ásamt ráðgjöfum með Skipulagsstofnun í dag vegna málsins.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að óska eftir heimild Skipulagsstofnunar til að auglýsa fyrirliggjandi breytingu á deiliskipulagstillögu í B-deild Stjórnartíðinda. Jafnframt samþykkir umhverfis- og framkvæmdanefnd að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að sækja um undanþágu til Minjastofnunar vegna fornleifaskráningar og húsakönnunar sem liggur ekki fyrir en verður unnin á næstu mánuðum.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.

3.Verndarsvæði í byggð

Málsnúmer 201509024

Skipulags- og byggingarfulltrúi fór yfir stöðu málsins og þá stefnu sem sett er fram í tillögu að verndarsvæði varðandi varðveislumat og þá umgjörð sem lögð er til varðandi verndun á svæðinu.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að undirbúa almenna kynningu á drögum að verndaráætlun.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.

4.Breyting á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs, Fjarðarheiðargöng

Málsnúmer 202004198

Verkefnislýsing fyrir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 var auglýst þann 16. júlí 2020 og var frestur til að skila umsögnum og koma á framfæri ábendingum til 10. ágúst. Ein umsögn, frá Náttúrufræðistofnun Íslands, var tekin fyrir á síðasta fundi nefndarinnar, en nú liggja fyrir þrjár umsagnir, frá Umhverfisstofnun, Minjastofnun og landeigendum.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd fór yfir þær umsagnir og athugasemdir sem hafa borist og samþykkir að vísa erindinu til skipulagsráðgjafa til úrvinnslu.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.

5.Breyting á deiliskipulagi Flugvallar

Málsnúmer 201802076

Skipulags- og byggingarfulltrúi fór yfir stöðu málsins.

Skipulags- og byggingarfulltrúi fundaði ásamt skipulagsráðgjöfum og fulltrúa Isavia með Skipulagsstofnun í dag vegna málsins.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að breyting á deiliskipulagi fyrir flugvöllinn dags. 13.3.2020 verði auglýst að nýju ásamt umhverfisskýrslu.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.

6.Árskógar 30 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 202007050

Fyrir liggur umsókn um byggingarleyfi, kynningargögn hafa borist.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að grenndarkynna erindið skv. 44. gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.

7.Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku í landi Hallgeirsstaða

Málsnúmer 202008105

Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti en bendir á að sækja þarf um starfsleyfi til Heilbrigðiseftirlits Austurlands.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.

8.Umsókn um framkvæmdaleyfi - stálbogaræsi í Fossá í Jökulsárhlíð

Málsnúmer 202008106

Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið. Áskilið er að framkvæmdaraðili kynni verkefnið fyrir Minjastofnun.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.

9.Umsókn um framkvæmdaleyfi - efnistaka við Mjóafjarðarveg

Málsnúmer 202008113

Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að skoða aðra möguleika með Vegagerðinni um malarnám úr opnum námum á aðalskipulagi.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.

10.Breyting á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps, verkefnislýsing til umsagnar

Málsnúmer 202008093

Til umsagnar er verkefnislýsing vegna breytingar á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi verkefnislýsingu.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.

11.Fjallskil 2020

Málsnúmer 202008029

Ganga þarf frá ráðningu fjallskilastjóra á Jökuldal norðan ár og í Jökulsárhlíð.
Einnig liggja fyrir leiðbeiningar og gátlisti varðandi Covid-19 og göngur og réttir.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd þakkar Benedikt Arnórssyni hans störf sem fjallskilastjóri á Jökuldal norðan ár og í Jökulsárhlíð og samþykkir að ráða Árna Jón Þórðarson í hans stað.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að fela verkefnastjóra umhverfismála að kynna fjallskilastjórum leiðbeiningar og gátlista varðandi Covid-19.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.

12.Gangnaboð og gangnaseðlar 2020

Málsnúmer 202008081

Fyrir liggja gangnaseðlar Jökuldals norðan ár, Hjaltastaðaþinghár, Skriðdals og Jökulsárhlíðar.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða gangnaseðla en virði dagsverka hækki ekki að svo stöddu en bíði samræmingar í nýju sveitarfélagi.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.

13.Starfsáætlun umhverfis- og framkvæmdanefndar 2020

Málsnúmer 201904139

Fyrir liggur ósk um að farið verði í gangstéttarframkvæmdir á Hömrum.

Umrædd gangstétt er ekki á fjárhags- og starfsáætlun ársins 2020. Umhverfis- og framkvæmdanefnd vísar erindinu til gerðar starfs- og fjárhagsáætlunar 2021.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.

14.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 202006016

Umsókn um byggingarleyfi við Tjarnarbraut 11.
Grenndarkynning hefur farið fram og er án athugasemda.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.

15.Umsókn um styrk til samgönguleiðar (styrkvegir)

Málsnúmer 202003029

Borist hefur tilkynning frá Vegagerðinni vegna úthlutunar úr styrkvegasjóði.

Lagt fram til kynningar.

16.Tillaga að hundasvæði.

Málsnúmer 202008097

Erindi frá Félagi hundaeigenda á Fljótsdalshéraði þar sem óskað er eftir afgirtu svæði.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd þakkar erindið og leggur til að haldinn verði fundur með fulltrúum félags hundaeigenda á Fljótsdalshéraði fyrir næsta fund nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.

17.Varanleg braut fyrir mótocross

Málsnúmer 202008092

Erindi frá Akstursíþróttafélaginu Start þar sem óskað er eftir að gerð verði breyting á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að vísa erindinu til skipulagsráðgjafa aðalskipulags og óska eftir umsögn hans um þessa hugmynd.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.

18.Tillaga um bætta frísbígolf aðstöðu á Fljótsdalshéraði

Málsnúmer 202008070

Óskað er eftir bættri aðstöðu fyrir frisbígolf.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd þakkar erindið og bendir á að í vinnslutillögu deiliskipulags fyrir Selskóg sem nú er í kynningu, er gert ráð fyrir mögulegu svæði fyrir frisbígolf. Nánari útfærslu þarf að vinna í samráði við áhugasama aðila og íþrótta- og tómstundanefnd.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.

19.Heimildir um Miltisbrand á Fljótsdalshéraði.

Málsnúmer 202008016

Ósk um að upplýsingum um þekktar miltisbrandsgryfjur verði bætt inn á aðalskipulag Fljótsdalshéraðs.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að vísa erindinu til skipulagsráðgjafa aðalskipulags til úrvinnslu og að þessar upplýsingar verði færðar inn í skipulagsgögn við næstu endurskoðun.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.

Fundi slitið - kl. 20:00.