Umhverfis- og framkvæmdanefnd

68. fundur 26. apríl 2017 kl. 17:00 - 21:25 á bæjarskrifstofu á Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Árni Kristinsson formaður
  • Ágústa Björnsdóttir varaformaður
  • Ester Kjartansdóttir aðalmaður
  • Páll Sigvaldason aðalmaður
  • Þórhallur Borgarson varamaður
  • Vífill Björnsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Vífill Björnsson skipulags- og byggingarfulltrúi

1.Fundargerðir Náttúrustofu Austurlands 2017

Málsnúmer 201702023

Lagt fram til kynningar.

2.Fundargerð 134. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands

Málsnúmer 201704039

Lagt fram til kynningar.

3.Heimatún 1 Viðhald

Málsnúmer 201704029

Umhverfis- og framkvæmdanefnd frestar afgreiðslu erindisins, jafnframt óskar nefndin eftir frekari gögnum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Gestir

  • Kjartan Róbertsson, yfirmaður eignasjóðs - mæting: 17:15

4.Aðkoma og græn svæði á Egilsstöðum og Fellabæ

Málsnúmer 201609049

Framvinda vinnu er lögð fram til kynningar.

Gestir

  • Anna Katrín Svavarsdóttir - mæting: 17:30
  • Freyr Ævarsson - mæting: 17:30

5.Miðbærinn á Egilsstöðum

Málsnúmer 201703059

Umhverfis- og framkvæmdanefnd þakkar gestunum fyrir komuna, stefnt verður að hafa listan til hliðsjónar við forgangsröðun verkefna á sumri komanda.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Gestir

  • Ívar Ingimarsson - mæting: 18:55
  • Margrét Árnadóttir - mæting: 18:55

6.Ástand gatna í þéttbýli á Egilsstöðum

Málsnúmer 201704017

Umhverfis- og framkvæmdanefnd óskar eftir kostnaðarmati við lagfæringar á Fénaðarklöpp frá gatnamótum Kaupvangs niður að þjóðvegi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Ormsteiti 2017

Málsnúmer 201702030

Umhverfis- og framkvæmdanefndarnefnd telur ekki fært að gefa Ormsteitishátíðinni afslátt af vinnu starfsmanna Þjónustumiðstöðvarinnar við undirbúning hátíðarinnar.

Tillagan borin upp, já sögðu þrír (ÁK, PS, ÞB), einn segir nei (EK).

8.Bjarkasel 16, staðsetning bílskúrs

Málsnúmer 200909092

Umhverfis- og framkvæmdanefnd telur að ef sátt milli hagsmunaaðila næst, sé kominn grundvöllur til að falla frá fyrri ákvörðun.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

9.Átak í að fjarlægja ónýtar girðingar á Austurlandi

Málsnúmer 201605082

Afgreiðslu frestað.

10.Fjárhagsáætlun 2018 - Umhverfis- og framkvæmdanefnd.

Málsnúmer 201704023

Rammi fyrir árið 2018 lagður fram til kynningar.

11.Snjómokstursbifreið

Málsnúmer 201704014

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að taka tilboði frá IB ehf. í nýjan bíl og snjómokstursbúnað.
Jafnframt að núverandi bifreið (Ford F350) verði seldur ásamt snjómokstursbúnaði.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

12.Uppsalir/Hleinar - Breyting á landnotkun í aðalskipulagi

Málsnúmer 201704059

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindi umsækjanda og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að setja af stað viðeigandi breytingu á aðalskipulaginu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

13.Nafnabreyting lóða í Uppsölum

Málsnúmer 201704061

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið og felur Skipulags- og byggingarfulltrúa úrlausn þess.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

14.Beiðni um skiptingu lands og breytingu á landnotkun/Ketilsstaðir 1 og 2

Málsnúmer 201611003

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að auglýsa skuli tillögu að breyttu aðalskipulagi og tillögu að deiliskipulagi sbr. 31.gr. og 1.mgr. 41.gr Skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

15.Grásteinn, deiliskipulag

Málsnúmer 201703008

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að tillaga að deiliskipulagi verði auglýst sbr. 41.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 og felur Skipulags- og byggingarfulltrúa úrlausn þess.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

16.Tillaga til þingsályktunar um skipun starfshóps til að endurbæta löggjöf um vernd, velferð og veiðar villtra fugla og spendýra

Málsnúmer 201704046

Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur engar athugasemdir fram að færa.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

17.Frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur

Málsnúmer 201704052

Umhverfis- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemd við frumvarpið.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Ágústa Björnsdóttir vék af fundi 19:50.

Fundi slitið - kl. 21:25.