Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs
1.Starfsáætlanir nefnda Fljótsdalshéraðs 2020
2.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 500
Málsnúmer 2002003F
2.1
202001001
Fjármál 2020
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Á fundi bæjarráðs var farið yfir kostnaðaráætlun sem gerð hefur verið vegna fyrirhugaðrar tengibyggingar milli félagsheimilisins Iðavalla og reiðhallarinnar, sem áform voru um að byggja á sínum tíma og kominn er sökkull að.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að vísa gögnunum til umhverfis- og framkvæmdanefndar til kynningar. Að öðru leyti er gert ráð fyrir því að málið verði tekið upp við gerð langtíma fjárfestingaáætlana.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Á fundi bæjarráðs var farið yfir drög að stefnumörkun lögreglunnar á Austurlandi, skv. tilmælum þar um.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með bæjarráði og fagnar því sérstaklega að lögreglan skuli setja sér slíka stefnu og telur framsetningu hennar til sóma. Afgreiðsla bæjarráðs að öðru leyti staðfest.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
3.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 501
Málsnúmer 2002011F
3.1
202001001
Fjármál 2020
Bókun fundar
Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.
-
Bókun fundar
Á fundi bæjarráðs var lögð fram skýrsla starfshóps um frístundastarf á Fljótsdalshéraði, ásamt fundargerð síðasta fundar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með bæjarráði og þakkar starfshópnum fyrir vandaða skýrslu og samþykkir að vísa henni til fræðslunefndar og íþrótta- og tómstundanefndar til umfjöllunar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögur bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að vísa málinu til umhverfis- og framkvæmdanefndar til afgreiðslu m.a. í tengslum við miðbæjarskipulagið.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að fulltrúar í yfirkjörstjórn við kosningu til sveitarstjórnar í sameinuðu sveitarfélagi, verði eftirtalin.
Aðalfulltrúar:
Stefán Þór Eyjólfsson Fljótsdalshéraði, Ásdís Þórðardóttir Djúpavogshreppi og Björn Aðalsteinsson Borgarfjarðarhreppi.
Varafulltrúar:
Guðni Sigmundsson Seyðisfirði, Þórunn Hálfdanardóttir, Fljótsdalshéraði og Arna Christiansen Fljótsdalshéraði.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
4.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 126
Málsnúmer 2002004F
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Fyrir liggur erindi frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands þar sem bent er á að ef sveitarfélagið óskar þess að HAUST taki þátt í sýnatöku frá urðunarstað sveitarfélagsins, óskist upplýsingar þar að lútandi sendar fyrir 1. mars.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að Heilbrigðiseftirlit Austurlands annist áfram sýnatöku á urðunarstað fyrir Fljótsdalshérað.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla umhverfis- og framkvæmdanefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Breyting á aðalskipulagi fyrir hluta Grundar á Efra Jökuldal. Tillaga var áður tekinn fyrir á fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar þann 22.1. 2020, tillaga er tekinn aftur fyrir vegna smávægilegrar breytingar á landnotkun á opnum svæðum austan Jökulsár. Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir svör við athugasemdum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu málsins þar til leyfi ráðherra samkvæmt 2. mgr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004 liggur fyrir.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Erindi frá íbúum Fjósakambi 4 um byggingu bílskúrs á lóð þeirra.
Eftirfarandi tillaga lög fram:
Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd og samþykkir að erindið fái afgreiðslu samkvæmt 2. mgr. 43. gr. laga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Fyrir liggur umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Dalskóga 14.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að erindið fái afgreiðslu samkvæmt 2. mgr. 43. gr. laga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla umhverfis- og framkvæmdanefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla umhverfis- og framkvæmdanefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Fyrir liggur erindi frá landeigendum Vífilstaða þar sem óskað er eftir umsögn um landskipti og staðfestingu á lóðauppdrætti.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn jákvæða umsögn um landskipti. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ganga frá stofnun nýrra landnúmera ásamt staðfestingu á lóðauppdrætti.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu, en einn var fjarverandi (A.Á.).
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
4.17
201912108
Ný umferðarlög
Bókun fundar
Um síðustu áramót tóku gildi ný umferðarlög sem samþykkt voru á Alþingi í júní sl.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir álit umhverfis- og framkvæmdanefndar um að ýmsar breytingar fylgja þessum nýju lögum sem mikilvægt er að almenningur hafi góða yfirsýn yfir, enda varða umferðarlög alla vegfarendur á Íslandi.
Bæjarstjórn hvetur því alla til að kynna sér þessar breytingar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
5.Atvinnu- og menningarnefnd - 98
Málsnúmer 2002001F
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Á fund atvinnu- og menningarnefndar undir þessum lið mættu Skúli Björn Gunnarsson, Hafþór Valur Guðjónsson, Heiður Vigfúsdóttir og Margrét Ólöf Sveinsdóttir, fulltrúar Þjónustusamfélagsins á Héraði og Austurfarar. Málið var síðast á dagskrá nefndarinnar 14. nóvember 2019. Fulltrúar félaganna gerðu grein fyrir verkefnum framundan og kynntu vinnu við nýja heimasíðu visitegilsstadir.is.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með atvinnu- og menningarnefnd og beinir því til undirbúningsstjórnar um sameiningu sveitarfélaganna og sveitarstjórnar nýs sveitarfélags að gæta þess að samfella verði í markaðssetningu svæðisins, að samstarf komist á sem fyrst í markaðs- og atvinnumálum á milli svæða og að það starf verði kraftmikið í nýju sveitarfélagi.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Fyrir liggja drög að samningi við Leikfélag Fljótsdalshéraðs um styrk vegna félags- og geymsluaðstöðu. Málið var síðast á dagskrá atvinnu- og menningarnefndar 20. janúar 2020.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn fyrirliggjandi drög að samningi við leikfélagið.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla atvinnu- og menningarnefndar á úthlutun menningarstyrkja staðfest.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla atvinnu- og menningarnefndar á úthlutun styrkja úr Atvinnumálasjóði Fljótsdalshéraðs staðfest.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
6.Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 285
7.Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs - 86
Málsnúmer 2001019F
7.1
201901092
Milljarður rís
Bókun fundar
Afgreiðsla ungmennaráðs staðfest.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa fyrirspurn ungmennaráðs til umhverfis- og framkvæmdanefndar og til undirbúningsstjórnar vegna sameiningar sveitarfélaganna fjögurra.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Á fundi sínum 6. febrúar lagði ungmennaráð Fljótsdalshéraðs til að áfram verði haldið að leggja nýja og fegra þá göngu- og hjólastíga sem nú þegar eru til staðar í sveitarfélaginu. Sérstaklega þyrfti að skoða göngustígamál í Fellabæ. Þá leggur ráðið til að kannað verði sérstaklega möguleika þess að leggja göngu- og hjólastíg að Vök Baths.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu ungmennaráðs til umhverfis- og framkvæmdanefndar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Fyrir ungmennaráði lágu upplýsingar og reglur um tómstundaframlag sveitarfélagsins. Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs leggur til að reglur um tómstundaframlag verði útvíkkaðar þannig að hægt sé að nýta framlagið til kaupa á kortum í líkamsrækt.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu ungmennaráðs til íþrótta- og tómstundanefndar til skoðunar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 19:00.
Þeir sem tóku til máls í framhaldi af kynningu Benedikts voru í þessari röð. Kristjana Sigurðardóttir og Gunnar Jónsson. Einnig lokaði Benedikt umræðunni og þakkaði forseti honum síðan kynninguna.
Berglind Harpa Svavarsdóttir kynnti starfsáætlun fræðslunefndar, fyrir árið 2020. Einnig tók Kristjana Sigurðardóttir til máls og bar fram fyrirspurn og Berglind Harpa Svavarsdóttir sem svaraði fyrirspurninni. Björg Björnsdóttir, sem bar fram fyrirspurn og Berglind Harpa Svavarsdóttir sem svaraði fyrirspurn.
Að því búnu þakkaði forseti Berglindi kynninguna.