Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs

299. fundur 04. september 2019 kl. 17:00 - 18:00 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Stefán Bogi Sveinsson forseti
  • Anna Alexandersdóttir 1. varaforseti
  • Kristjana Sigurðardóttir 2. varaforseti
  • Gunnar Jónsson bæjarfulltrúi
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir bæjarfulltrúi
  • Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir bæjarfulltrúi
  • Aðalsteinn Ásmundarson bæjarfulltrúi
  • Hannes Karl Hilmarsson bæjarfulltrúi
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason skrifstofu- og starfsmannastjóri
  • Dagur Skírnir Óðinsson varamaður
Fundargerð ritaði: Stefán Snædal Bragason bæjarritari

1.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 479

Málsnúmer 1908011F

Til máls tók: Anna Alexandersdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum.

Fundargerðin lögð fram.
  • 1.1 201901002 Fjármál 2019
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • 1.7 201709008 Ísland ljóstengt
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • 1.8 201908162 Flug - Skoska leiðin
    Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Fljótsdalshérað og samtök sveitarfélaga á Austurlandi hafa ítrekað lagt á það áherslu að skilgreina þurfi innanlandsflug sem almenningssamgöngur og að flugfargjöld verði þannig að íbúar úti á landi geti nýtt sér þá þjónustu sem er í boði. Verðlagning eins og hún er í dag er hins vegar þess eðlis að hún stendur eðlilegri nýtingu íbúa á þessari þjónustu fyrir þrifum og þar með aðgengi þeirra að nauðsynlegri grunn- og sérfræðiþjónustu sem að mestu er staðsett á höfuðborgarsvæðinu og rýrir þar með landshlutann sem búsetukost. Bæjarstjórn hvetur því samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra til að sjá til þess að hin svokallaða skoska leið komist til framkvæmda strax í byrjun árs 2020 líkt og kveðið er á um í samgönguáætlun næstu fimm ára sem samþykkt var á Alþingi 7. febrúar 2019.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • 1.9 201908163 Fjarðarheiðargöng
    Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með bæjarráði og fagnar því að fyrir liggur niðurstaða starfshóps um legu og áfangaskiptingu næstu jarðgangaframkvæmda á Austurlandi. Niðurstaðan byggir m.a. á úttekt fagaðila þar sem horft er til jarðfræði, veðurfars og samfélagslegra þátta. Beðið hefur verið lengi eftir þeirri niðurstöðu er nú liggur fyrir og ánægjulegt að sjá að hún skuli vera í fullu samræmi við þær áherslur er ítrekað hafa komið fram í ályktunum aðalfunda samtaka sveitarfélaga á Austurlandi og sem ríkt hefur full samstaða um. Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs væntir þess að við afgreiðslu samgönguáætlunar nú í haust verði tryggt fjármagn til þess að vinna strax á næsta ári að hönnun framkvæmdarinnar þannig að hefjast megi handa við fyrsta áfangann, Fjarðarheiðargöng, á fyrsta tímabili samgönguáætlunar og áfanga tvö og þrjú í beinu framhaldi af því.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 480

Málsnúmer 1908016F

Til máls tóku: Anna Alexandersdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum og Stefán Bogi Sveinsson, sem vakti athygli á mögulegu vanhæfi sínu undir lið 2.6 og 2.7 og úrskurðaði forseti hann vanhæfan.

Fundargerðin lögð fram.

3.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 117

Málsnúmer 1908013F

Til máls tók: Stefán Bogi Sveinsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum.

Fundargerðin lögð fram.

4.Atvinnu- og menningarnefnd - 90

Málsnúmer 1908009F

Til máls tóku: Gunnhildur Ingvarsdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum og Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi liði 4.2 og 4.8.

Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar Vísað til 2.6.
  • Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Í samræmi við afgreiðslu atvinnu- og menningarnefndar, sem og með vísan til áherslna sem fram hafa komið hjá bæjarráði og á sameiginlegum fundi bæjarráða Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar, samþykkir bæjarstjórn að óska eftir því að framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands ehf. (Air Iceland Connect) komi til fundar við fulltrúa úr bæjarstjórn og atvinnu- og menningarnefnd til að svara spurningum um sætaframboð og verðmyndun í flugi milli Egilsstaða og Reykjavíkur.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn að Ingibjörg Jónsdóttir verði fulltrúi í starfshópnum í stað Arons Steins Halldórssonar.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Afgreiðsla atvinnu- og menningarnefndar staðfest.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Afgreiðsla atvinnu- og menningarnefndar staðfest.
  • 4.7 201908098 Dagar myrkurs 2019
    Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs tekur undir með atvinnu- og menningarnefnd og gagnrýnir knappan tíma fyrir ábendingar. Þá er gagnrýnt að ekki hafi verið fulltrúar af landsbyggðinni í starfshópnum sem vann drögin sem eru til umsagnar. Bæjarstjórn telur óheppilegt að í drögunum skuli ekki vera fjallað um að opna fleiri gáttir inn í landið með reglubundnu millilandaflugi. Bæjarstjórn fagnar á hinn bóginn framkomnum tillögum um að Egilsstaðaflugvöllur verði í fyrsta forgangi sem varaflugvöllur og hvetur til þess að flugvöllurinn fái sem fyrst það viðhald sem kröfur eru um og sem fyrst verði ráðist í nauðsynlegar nýframkvæmdir.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

5.Félagsmálanefnd - 174

Málsnúmer 1908014F

Forseti benti á að lið 5.3 í fundargerðinni, Dagvist aldraðra mál nr. 201906123, vantar í dagskrá bæjarstjórnarfundarins og er honum vísað til afgreiðslu á næsta fundi bæjarstjórnar.

Til máls tók: Anna Alexandersdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum.


Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Fram kom á fundi félagsmálanefndar að félagsmálastjóri hefur kynnt viðhorf nefndarinnar fyrir Barnaverndarstofu, ásamt því að hafa rætt við aðra félagsmálastjóra á landsbyggðinni.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með félagsmálanefnd og vill koma því á framfæri við Barnaverndarstofu og Gæða- og eftirlitsstofnun að ekki séu gerðar ómarkvissar kröfur um skýrslugerð og upplýsingaöflun, heldur komi stofnanirnar sér saman um hvaða upplýsingar séu nauðsynlegar og þeirra aflað á markvissan og skýran hátt. Markmið Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs er að koma í veg fyrir ónauðsynlega skriffinnsku en nýta starfsfólk til þess að vinna með fólki.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Lagt fram.

6.Íþrótta- og tómstundanefnd - 54

Málsnúmer 1906019F

Til máls tók: Berglind Harpa Svavarsdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum.

Fundargerðin lögð fram.

7.Samþykkt um stjórn og fundarsköp Fljótsdalshéraðs

Málsnúmer 201806082

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir hér við síðari umræðu endurskoðaða Samþykkt um stjórn og fundarsköp Fljótsdalshéraðs og felur bæjarstjóra að láta birta hana eins og lög og reglur mæla fyrir um.

Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að fela bæjarráði að semja drög að reglum um opna fundi fastanefnda sveitarfélagsins. Einnig er bæjarráði falið að vinna að endurskoðun samþykkta fyrir einstaka fastanefndir í samræmi við þær breytingar sem gerðar hafa verið á samþykktum um stjórn og fundarsköp.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Kosning fulltrúa í embætti, stjórnir og nefndir á vegum Fljótsdalshéraðs

Málsnúmer 201806080

Guðfinna Harpa Árnadóttir, sem verið hefur formaður umhverfis- og framkvæmdanefndar, hefur óskað eftir að láta af formennsku.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir að Benedikt Hlíðar Stefánsson, sem verið hefur varaformaður umhverfis- og framkvæmdanefndar, verði formaður nefndarinnar. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að Guðfinna Harpa Árnadóttir verði varaformaður nefndarinnar í stað Benedikts.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.


Fyrir bæjarstjórn liggur að kjósa í undirkjörstjórnir. Í yfirkjörstjórn sitja eftirfarandi sem kjörnir voru af bæjarstjórn 20. júní 2018.

Stefán Þór Eyjólfsson formaður
Þórunn Hálfdanardóttir
Arna S.D. Christiansen

Til vara í yfirkjörstjórn
Ólöf Ólafsdóttir
Vignir Elvar Vignisson
Jón Hávarður Jónsson

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir að neðangreindir séu kjörnir í undirkjörstjórnir.

Undirkjörstjórn 1
Jón Jónsson
Rannveig Árnadóttir
Lovísa Hreinsdóttir

Til vara
Eydís Bjarnadóttir
Sveinn Herjólfsson
Þór Þorfinnsson

Undirkjörstjórn 2
Sóley Garðarsdóttir
Stefán Þór Hauksson
Agnar Sverrisson

Til vara
Kristinn Árnason
Inga Rós Unnarsdóttir
Guðný Kjartansdóttir Briem

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 18:00.