Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs

255. fundur 19. apríl 2017 kl. 17:00 - 19:00 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Anna Alexandersdóttir forseti
  • Sigrún Blöndal 1. varaforseti
  • Stefán Bogi Sveinsson 2. varaforseti
  • Gunnar Jónsson aðalmaður
  • Þórður Mar Þorsteinsson bæjarfulltrúi
  • Guðmundur Sveinsson Kröyer bæjarfulltrúi
  • Árni Kristinsson bæjarfulltrúi
  • Páll Sigvaldason bæjarfulltrúi
  • Aðalheiður Björt Unnarsdóttir varamaður
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason skrifstofu- og starfsmannastjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Bragason skrifstofustjóri

1.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 382

Málsnúmer 1704001F

Til máls tóku: Gunnar Jónsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Einnig ræddi hann sérstaklega lið 1.6. Sigrún Blöndal, sem ræddi lið 1.6. Þórður Mar Þorsteinsson, sem ræddi lið 1.6. Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi lið 6.1. Sigrún Blöndal, sem ræddi lið 1.6 og Þórður Mar Þorsteinsson, sem ræddi lið 1.6.

Fundargerðin lögð fram.
  • 1.1 201701003 Fjármál 2017
    Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Fundargerðin lögð fram til kynningar.
  • Bókun fundar Fundargerðin lögð fram til kynningar.
  • Bókun fundar Fundargerðin lögð fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lagt fram fundarboð vegna ársfundar Stapa lífeyrissjóðs, sem boðaður er í Skjólbrekku Mývatnssveit miðvikudaginn 3. maí kl. 13:00. Fljótsdalshéraði, sem er meðal 40 stærstu launagreiðenda á svæðinu, er boðið að senda fulltrúa á fundinn.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að tilnefna fjármálastjóra sem fulltrúa Fljótsdalshéraðs á fundinum.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Í bæjarráði var lagt fram bréf frá ábúendum á Unaósi-Heyskálum, varðandi áframhaldandi ábúð á jörðinni og drátt á því að hún sé auglýst laus til ábúðar. Í framhaldinu ræddi bæjarráð ábúð á ríkisjörðum í sveitarfélaginu og tregðu ríkisvaldsins til að auglýsa aftur jarðir til ábúðar sem sagt hefur verið lausum.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur heilshugar undir með bréfriturum og ítrekar fyrri afstöðu sína í málefnum ríkisjarða sem birtist meðal annars í bókun bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs frá 15. júní 2016 og var svohljóðandi: Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs beinir því til ríkisvaldsins að leita allra leiða til þess að ríkisjarðir séu setnar og tryggja að samfella sé í búrekstri þeirra jarða sem hafa verið í nýtingu. Í ljósi stöðu dreifbýlis Fljótsdalshéraðs er það sveitarfélaginu sérstaklega mikilvægt að þessar kostajarðir séu setnar. Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Atvinnu- og menningarnefnd - 51

Málsnúmer 1704003F

Til máls tók: Guðmundur Sveinsson Kröyer, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum.

Fundargerðin lög fram.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Fyrir liggur umsókn um styrk frá Félagi skógarbænda á Austurlandi vegna Skógardagsins mikla 2017.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu atvinnu og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn að verkefnið verði styrkt um kr. 200.000 sem tekið verði af lið 0589.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Fyrir liggur styrkumsókn frá SAM félagi, grasrótarsamtökum skapandi fólks á Austurlandi, um vinnustofu til að efla skógarmenningu og viðarnytjar á Austurlandi.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn að verkefnið verði styrkt um kr. 150.000 sem tekið verði af lið 1389.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Fyrir liggur umsókn um styrk frá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs vegna uppsetningar á leikverki sem sýnt verðu í maí 2017 og vegna undirbúnings á sviðsverki sem fyrirhugað er til sýningar í mars 2018.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn að leikfélagið verði styrkt um kr. 450.000 sem tekið verði af lið 0581.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Fyrir liggur þjónustu- og samstarfssamningur við Austurbrú vegna ársins 2017. Framlag sveitarfélagsins rúmast innan þeirrar áætlunar sem gerð var í haust vegna samningsins.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn framlagðan samning.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 67

Málsnúmer 1704004F

Til máls tóku: Árni Kristinsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Einnig ræddi hann sérstaklega liði 3.1 og 3.22. Sigrún Blöndal, sem vakti athygli á vanhæfi sínu vegna liðar 3.12 og úrskurðaði forseti hana vanhæfa. Gunnar Jónsson sem vakti athygli á vanhæfi sínu vegna liðar 3.14 og úrskurðaði forseti hann vanhæfan. Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi lið 3.14 og bar fram fyrirspurn. Árni Kristinsson, sem svaraði fyrirspurn vegna liðar 3.14. Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi lið 3.14. Árni Kristinsson, sem ræddi lið 3.14. Stefán Bogi Sveinsson sem ræddi lið 3.10 og bar fram fyrirspurn. Gunnar Jónsson, sem ræddi lið 3.10 og svaraði fyrirspurn. Þórður Mar Þorsteinsson, sem ræddi lið 3.10. Gunnar Jónsson, sem ræddi lið 3.10. Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi lið 3.10 og Árni Kristinsson, sem ræddi lið 3.10.

Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • 3.3 201702095 Rafbílavæðing
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lagt er fyrir erindi Þorsteins Guðmundssonar og Lindu Bjarkar Steingrímsdóttur eigenda Ketilsstaða í Hjaltastaðaþinghá, landnr.157201, Umsókn um skráningu nýrra landeignar í fasteignaskrá.
    Stofnuð verði ný lóð út úr upprunalandinu Ketilsstaðir, landnr.157201, sem bera á heitið Ketilsstaðir I, stærð nýstofnaðar lóðar verði 61.780 fermetrar (um 6,2ha).

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögur umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindið og felur Skipulags- og byggingarfulltrúa úrlausn þess.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lagt er fyrir erindi Þórhalls Pálssonar fyrir hönd lóðarhafa, um breytingar á deiliskipulagi fyrir Unalæk A6 og B2.
    Í breytingunni felst að breyta greinargerð skipulagsins í að heimila sölu gistingar á lóðum A6 og B2.
    Umhverfis- og framkvæmdanefnd fól Skipulags- og byggingarfulltrúa úrlausn málsins.

    Erindi var sent í grenndarkynningu sbr. 43. og 44.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 með dagsettu bréfi 22.2.2017.
    Frestur til að gera athugasemdir við framlagða tillögu var til föstudagsins 24. mars 2017.
    Athugasemdir bárust á kynningartíma.

    Lagt var fyrir nefndina:
    - Athugasemdir frá Lögfræðiþjónustunni Lagastoð fyrir hönd eiganda lóða að Unalæk A1, A3 og A5.
    - Bréf og tölvupóstur bæjarlögmanns með innsendar athugasemdir að umfjöllunarefni.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn breytingu á deiliskipulagi Unalækjar þannig að á lóðunum A6 og B2 verði heimilt að vera með sölu á gistingu.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

    Gunnar Jónsson gerði grein fyrir atkvæði sínu. Stefán Bogi Sveinsson gerði grein fyrir atkvæði sínu.
  • Bókun fundar Málið er í vinnslu hjá bæjarráði.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Lagt er fyrir erindi frá Skipulagsstofnun, Kröflulína 3 - beiðni um umsögn.
    Landsnet hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Kröflulínu 3, Skútustaðahreppi, Fljótsdalshéraði og Fljótsdalshreppi.
    Umsögn óskast send Skipulagsstofnun fyrir 10.apríl 2017, sótt hefur verið um frest til að skila umsögn vegna tímasetningu fundar Umhverfis- og framkvæmdanefndar.

    Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur kynnt sér frummatsskýrslu um Kröflulínu 3 og hefur engar athugasemdir fram að færa.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að gefin verði jákvæð umsögn.

    Bæjarstjórn hvetur framkvæmdaaðila til að gera athugun á því hvort að vegurinn á Efri Jökuldal þoli þá þungaflutninga sem um hann þurfa að fara framkvæmdarinnar vegna. Eins er það skoðun bæjarstjórnar að framkvæmdin kalli á nýja brú yfir Jökulsá á Dal milli Hákonarstaða og Klaustursels.

    Bæjarstjórn leggur áherslu á að framkvæmdin verði unnin í sátt við landeigendur, ábúendur og náttúruna, þá sérstaklega votlendis og gróðursvæða.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

    Stefán Bogi Sveinsson lagði fram eftirfarandi viðbótartillögu:

    Bæjarstjórn hvetur íbúa sveitarfélagsins og aðra hagsmunaaðila til að kynna sér fyrirliggjandi frummatsskýrslu og skila inn athugasemdum. Almennur frestur til þess rennur út 5. maí n.k.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Lagt er fyrir erindi Björn Sveinssonar fyrir hönd lóðarhafa að Lagarfelli 3, þar sem óskað var eftir samþykkt byggingaráforma / breytinga á norðanverðu húsinu, 16 fermetra viðbygging að brúttó grunnfleti. Viðbyggingin norðan við er 3,2m x 5m að stærð og er 6,02m frá norðvesturhorni núverandi húss.
    Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkti að senda erindið í grenndarkynningu sbr. 44.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
    Frestur til að gera athugasemdir við framlagða tillögu var til mánudagsins 3. apríl sl.

    Engar athugasemdir eða ábendingar bárust á kynningartíma.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn því erindið og felur Skipulags- og byggingarfulltrúa úrlausn þess.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu, en 1 var fjarverandi (S.Bl.).
  • 3.13 201703048 Styrkvegir 2017
    Bókun fundar Afgreiðsla umhverfis- og framkvæmdanefndar staðfest.
  • Bókun fundar Lagt er fyrir erindi Eflu, fyrir hönd Gunnars Jónssonar, stofnun og stækkun lóða við Flugvallaveg til vesturs.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindið og felur Skipulags- og byggingarfulltrúa úrlausn þess.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu, en 1 var fjarverandi (GJ.)
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Afgreiðsla umhverfis- og framkvæmdanefndar staðfest.
  • 3.17 201704014 Snjómokstursbifreið
    Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Afgreiðsla umhverfis- og framkvæmdanefndar staðfest.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Framvinda á máli Tjarnarbraut, framkvæmd 2017, lögð fram til kynningar.
    Fjögur tilboð bárust.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Austurverk ehf. Tilboðið hljóðar upp á 17.567.562,-kr. sem er 78% af kostnaðaráætlun.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.

4.Jafnréttisnefnd Fljótsdalshéraðs - 161

Málsnúmer 1704005F

Til máls tók; Sigrún Blöndal, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókun.

Fundargerðin lögð fram.

5.Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs - 58

Málsnúmer 1703024F

Fundargerðin lögð fram.

6.Umsókn um rekstrarleyfi fyrir sölu veitinga

Málsnúmer 201703165

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir sölu veitinga (Veitingastofa og greiðasala) í flokki II, í Orku-Skálanum að Fagradalsbraut 13 Egilsstöðum

Fyrir liggur jákvæð umsögn frá byggingarfulltrúa og Heilbrigðiseftirliti.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn veitir jákvæða umsögn og staðfestir jafnframt að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsóknin lýtur að, sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segir til um.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Umsókn um rekstrarleyfi til veitingasölu

Málsnúmer 201704031

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir sölu veitinga (Veitingastofa og greiðasala) í flokki II í Asparhúsinu að Vallanesi.

Fyrir liggur jákvæð umsögn frá byggingarfulltrúa og Heilbrigðiseftirliti.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn veitir jákvæða umsögn og staðfestir jafnframt að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsóknin lýtur að, sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segir til um.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 19:00.