Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 382
Málsnúmer 1704001F
.1
201701003
Fjármál 2017
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram fundarboð vegna ársfundar Stapa lífeyrissjóðs, sem boðaður er í Skjólbrekku Mývatnssveit miðvikudaginn 3. maí kl. 13:00. Fljótsdalshéraði, sem er meðal 40 stærstu launagreiðenda á svæðinu, er boðið að senda fulltrúa á fundinn.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að tilnefna fjármálastjóra sem fulltrúa Fljótsdalshéraðs á fundinum.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í bæjarráði var lagt fram bréf frá ábúendum á Unaósi-Heyskálum, varðandi áframhaldandi ábúð á jörðinni og drátt á því að hún sé auglýst laus til ábúðar. Í framhaldinu ræddi bæjarráð ábúð á ríkisjörðum í sveitarfélaginu og tregðu ríkisvaldsins til að auglýsa aftur jarðir til ábúðar sem sagt hefur verið lausum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur heilshugar undir með bréfriturum og ítrekar fyrri afstöðu sína í málefnum ríkisjarða sem birtist meðal annars í bókun bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs frá 15. júní 2016 og var svohljóðandi: Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs beinir því til ríkisvaldsins að leita allra leiða til þess að ríkisjarðir séu setnar og tryggja að samfella sé í búrekstri þeirra jarða sem hafa verið í nýtingu. Í ljósi stöðu dreifbýlis Fljótsdalshéraðs er það sveitarfélaginu sérstaklega mikilvægt að þessar kostajarðir séu setnar. Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Fundargerðin lögð fram.