-
Bókun fundar
Lögð var fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd til kynningar, fundargerð Heilbrigðisnefndar Austurlands nr. 132.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar tekur bæjarstjórn undir bókun Heilbrigðisnefndar Austurlands varðandi brotalamir í eftirliti og eftirfylgni. Bæjarstjórn leggur áherslu á að stjórnvöld efli starfssemi opinberra starfsstöðva á landsbyggðinni, eins og Haust, þannig að þeim verði gert kleift að sinna auknu eftirlitshlutverki í nærumhverfi. Fyrir því liggja bæði faglegar og fjárhagslegar forsendur sem munu tryggja betur aðhald, skilvirkt eftirlit og eftirfylgni úr nærumhverfinu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu með 8 atkvæðum.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Á fundi nefndarinnar voru til umfjöllunar framkvæmdir 2017, gatnaframkvæmdir, göngustígar o.fl. og viðhald gatna. Skipulags- og byggingarfulltrúi fór yfir fyrirhugaðar nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni gatna og göngustíga 2017.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur yfirfarið verkefnislista nýframkvæmda og viðhaldsverkefna og gerir bæjarstjórn ekki athugasemd við þá afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu með 8 atkvæðum.
-
Bókun fundar
Fyrir liggja drög að samningi um Egilsstaðastofu og tjaldsvæðið á Egilsstöðum, milli Fljótsdalshéraðs og Austurfarar, og Þjónustusamfélagsins á Héraði að þeim þáttum sem eingöngu snúa að Egilsstaðastofu.
Málið var síðast á dagskrá nefndarinnar 21. nóvember 2016.
Atvinnu- og menningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi fyrir sitt leyti en vísar viðauka við samninginn, um uppbyggingu á svæðinu, til umhverfis- og framkvæmdanefndar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Nú þegar umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur yfirfarið viðaukann,samþykkir bæjarstjórn að gert verði ráð fyrir framkvæmdunum á þriggja ára áætlun, jafnframt samþykkt að á yfirstandandi ári verði farið í framkvæmdir vegna vaskaskýlis og rafmagns við eldunaraðstöðu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu með 8 atkvæðum.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla staðfest.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla umhverfis- og framkvæmdanefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Lögð var fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd leiðrétt tillaga að deiliskipulagi Möðrudals, ásamt svarbréfi frá Birni Sveinssyni frá Verkís ehf., skipulagsráðgjafa umsækjanda.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd metur svo að komið hafið verið til móts við þær athugasemdir/ábendingar sem bárust.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn felur Skipulags- og byggingarfulltrúa úrvinnslu málsins skv.42. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu með 7 atkvæðum. Sigrún Blöndal var fjarverandi.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Fyrir liggur tillaga að kerfisáætlun 2016-2025 um áætlaða þróun notkunar og framleiðslu raforku tengdri flutningskerfi Landsnets auk þeirrar uppbyggingar sem ráðgerð er á meginflutningskerfinu.
Landsnet kynnir nú tillögu að kerfisáætlun í samræmi við raforkulög nr. 65/2003 m.s.br. og umhverfisskýrslu í samræmi við lög nr.105/2006, en í umhverfisskýrslu er lagt mat á umhverfisáhrif kerfisáætlunar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd og gerir ekki athugasemd við kerfisáætlun Landsnets. Bæjarstjórn leggur áherslu á að tekið verði tillit til umhverfis- og náttúrusjónarmiða og hagsmuna landeiganda við allar framkvæmdir.
Bæjarstjórn telur jafnframt að þörf sé á að farið sé í framkvæmdir sem fyrst til að tryggja raforkuöryggi í landinu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu með 8 atkvæðum.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Til umræðu hjá umhverfis- og framkvæmdanefnd var erindið Plastpokalaust sveitarfélag.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að sveitarfélagið Fljótsdalshérað verði plastpokalaust sveitarfélag í byrjun árs 2018.
Jafnframt að verkefnið verði unnið í samráði við nágrannasveitarfélög.
Jafnframt samþykkir bæjarstjórn tillögu nefndarinnar um að í tilefni 70 ára afmælis Egilsstaðakauptúns verði heimilum í sveitarfélaginu gefinn fjölnota burðarpoki. Umhverfis- og framkvæmdanefnd falin nánari útfærsla.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu með 8 atkvæðum.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Til umræðu er erindið skipan fulltrúa í svæðisskipulagsnefnd.
Guðrún Ragna Einarsdóttir segir af sér sem fulltrúi sveitarfélagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að tilnefna Vífil Björnsson, skipulags- og byggingarfulltrúa Fljótsdalshéraðs sem aðalfulltrúa og Kjartan Róbertsson sem varafulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu með 8 atkvæðum.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Til umsagnar er lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs og drög að breytingum að sömu samþykkt.
Lagt er til að breyta 9. gr. samþykktar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn breytingu á 9. gr. lögreglusamþykktar Fljótsdalshéraðs á þann veg að við textann bætist fimmta málsgreinin.
9. grein verði því eftirfarandi:
Bæjarstjórn getur sett umgengnisreglur um skemmtigarða, leikvelli, lystigarða, tjarnir, kirkjugarða og önnur opinber svæði, enda séu reglurnar festar upp við innganginn eða á öðrum áberandi stað.
Hvorki má troða niður ræktaða bletti, grasreiti, blómabeð og limgerði á almannafæri né slíta þar upp blóm eða annan gróður.
Í dreifbýli er bannað að spilla gróðri, nema um sé að ræða jarðarbætur á vegum ábúenda á bújörðum eða aðrar heimilar framkvæmdir.
Eigi má gista í tjöldum, húsbílum, hjólhýsum og tjaldvögnum á almannafæri í þéttbýli utan sérmerktra svæða.
Ofangreint á einnig almennt við um gistingu á almannafæri innan marka sveitarfélagsins. Óheimilt er að hafa gistingu í tjaldvögnum, fellihýsum, hjólhýsum, húsbílum og öðrum sambærilegum búnaði utan skipulagðra tjaldsvæða og þéttbýlis nema leyfi landeiganda lands komi þar til, sbr. lög um náttúruvernd nr. 60/2013 með síðari breytingum.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu með 8 atkvæðum.
-
Bókun fundar
Málið er í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.