9. fundur
24. nóvember 2014 kl. 17:00 - 19:30 á bæjarskrifstofu á Egilsstöðum
Nefndarmenn
Guðmundur Sveinsson Kröyerformaður
Ragnhildur Rós Indriðadóttiraðalmaður
Þórður Mar Þorsteinssonaðalmaður
Gunnar Þór Sigbjörnssonaðalmaður
Þórarinn Páll Andréssonvaramaður
Óðinn Gunnar Óðinsson
Fundargerð ritaði:Óðinn Gunnar Óðinssonatvinnu-. menningar- og íþróttafulltrúi
Í upphafi fundar óskaði formaður nefndarinnar eftir að nýtt mál, Húsráð félagsheimilsins á Eiðum, yrði tekið á dagskrá fundarins og var það samþykkt samhljóða.
1.Egilsstaðaflugvöllur og áfangastaðurinn Austurland
Á fundinn undir þessum lið mætti María Hjálmarsdóttir frá Austurbrú og fór hún yfir stöðu ýmissa mála er varða millilandaflug um Egilsstaðaflugvöll.
Atvinnu-, og menningarnefnd Fljótsdalshéraðs kallar eftir heilstæðri stefnu frá stjórnvöldum um rekstur og markaðssetningu alþjóða flugvallarins á Egilsstöðum. Það er skoðun nefndarinnar að stefna skuli að því að opnuð verði fleiri en ein fluggátt fyrir alþjóðaflug inn í landið vegna aukningar ferðamanna, öryggis þeirra og sem lið í því að dreifa álagi vegna hins aukna ferðamannastraums til landsins. Nefndin tekur heilshugar undir ályktun Sambands sveitarfélaga á Austurlandi frá því í september sl. þar sem eindreginn stuðningur var við hugmyndina um eflingu Egilsstaðaflugvallar sem aðra gátt ferðamanna til landsins. Bókun bæjastjórnar Norðurþings frá 21. október sl. tekur undir þessa hugmynd en þar eru stjórnvöld hvött til að markaðssetja Egilsstaðaflugvöll til erlendra flugfélaga sem valkost við Keflavíkurflugvöll. Nefndin fagnar því að Egilsstaðaflugvöllur sé nefndur í þessum bókunum sem annar valkostur við Keflavík, og styrkir þá skoðun nefndarinnar að hann sé best til þessa hlutverks fallinn. Atvinnu- og menningarnefnd Fljótsdalshéraðs skorar á stjórnvöld að byggja flugvöllinn upp enn frekar svo nýta megi hann betur sem alþjóðlega samgöngumiðstöð.
Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að gerður verður samningur milli Fljótsdalshéraðs, Þjónustusamfélagsins á Héraði og Austurfarar ehf um rekstur upplýsingamiðstöðvar á Egilsstöðum. Fyrirhuguð miðstöð verði staðsett í þjónustuhúsi tjaldsvæðisins. Þar verði jafnframt gert ráð fyrir bílastæðum fyrir rútur og almenningssalernum. Gerður verði samningur til tveggja ára með möguleika á framlengingu. Fjármunir Fljótsdalshéraðs til reksturs upplýsingamiðstöðvarinnar verði teknir af lið 13.62. Nefndin er tilbúin að skoða aðkomu annarra aðila að miðstöðinni samræmist hún áherslum sveitarfélagsins og rekstraraðila.
Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að starfsmaður nefndarinnar fari yfir starfslýsingu forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs með hliðsjón af þeirri þróun sem orðið hefur á starfinu síðustu misserin.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
6.Umsókn um styrk vegna sýningarinnar Yfir hrundi askan dimm...
Fyrir liggur umsókn um styrk, undirrituð af Elsu Guðnýju Björgvinsdóttur, vegna sýningarinnar Yfir hrundi askan dimm..., sem sett hefur verið upp í Sláturhúsinu.
Atvinnu- og menningarnefnd leggur að verkefnið verði styrkt um kr. 45.000 sem verði tekið af lið 05.74.
Lagt fram til kynningar minnisblað frá Alta um tækifæri í byggðaþróun og atvinnu á grunni sérstöðu. Í vinnslu.
Atvinnu og menningarnefnd óskar aðstandendum verkefnisins Austurland: Design from Nowhere til hamingju með Hönnunarverðlaun Íslands, en verðlaunin voru veitt í síðustu viku.
Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að Guðmundur Sveinsson Kröyer verði fulltrúi sveitarfélagsins í húsráði félagsheimilisins á Eiðum. Jafnframt óskar nefndin eftir að Kvenfélag Eiðaþinghár og Ungmennafélagið Fram tilefni fulltrúa sína í húsráðið.