Umhverfis- og framkvæmdanefnd

96. fundur 29. ágúst 2018 kl. 17:00 - 20:15 á bæjarskrifstofu á Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Guðfinna Harpa Árnadóttir formaður
  • Benedikt Hlíðar Stefánsson varaformaður
  • Karl Sigfús Lauritzson aðalmaður
  • Aðalsteinn Ásmundarson aðalmaður
  • Kristjana Sigurðardóttir aðalmaður
  • Hrefna Hlín Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi
  • Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Í upphafi fundar bar formaður upp ósk um að eftirfarandi mál fengju afgreiðslu ef tími gæfist til og verða þau nr. 10, 11 og 12. Breyting á lóðamörkum Hömrum 18, Selskógur deiliskipulag og Æskulýðsstefna Fljótsdalshéraðs.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

1.Varmadælulausn í Brúarásskóla

Málsnúmer 201805116

Fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd liggur tillaga að orkusparandi aðgerðum vegna húshitunar í Brúarásskóla.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að gengið verði til framkvæmda við orkusparandi aðgerðir vegna húshitunar í Brúarásskóla í samræmi við fyrirliggjandi áætlun. Áætlunin gerir ráð fyrir loft í vatn varmadælulausn og að fyrirhugaðar framkvæmdir skili sér til baka í lækkuðum húshitunarkostnaði á 6 til 7 ára bili.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Egilsstaðaskóli, ástand fasteignar

Málsnúmer 201808179

Yfirmaður eignasjóðs fór yfir ástand Egilsstaðaskóla.

Yfirmanni eignasjóðs er falið að leggja fram áætlun, kostnaðarmat og forgangsröðun vegna nauðsynlegra framkvæmda við Egilsstaðaskóla fyrir lok september.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Kjartan Róbertsson yfirmaður eignasjóðs sat fundinn undir lið 1 og 2.

3.Gangnaboð og gangnaseðlar 2018

Málsnúmer 201808045

Lagðir eru fram gangnaseðlar Jökuldals norðan og austan ár, Hróarstungu, Fella, Hjaltastaðaþinghár, Jökulsárhlíðar, Skriðdals, Valla og Eiðaþinghár.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir framlögð gangnaboð og felur starfsmanni sveitarfélagsins að dreifa fundargerð og gangnaseðlum á viðeigandi bæi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Uppbygging vindorku innan Fljótsdalshéraðs

Málsnúmer 201706031

Lagt fram erindi frá Orkusölunni varðandi nýtingu vindorku innan sveitarfélagsins. Málið hefur verið til umfjöllunar í atvinnu-og menningarnefnd.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd er fylgjandi nýtingu vindorku í sveitarfélaginu en telur nauðsynlegt að skilgreina í komandi endurskoðun aðalskipulags þau svæði sem heimilt verði að nýta til orkuöflunar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Freyr Ævarsson sat fundinn undir lið 3 og 4.

5.Spennuhækkun austfjarðahrings - breytingar á skipulagi

Málsnúmer 201808172

Til stendur að rífa niður hluta af Eskifjarðarlínu 1 ofan jörðu og leggja þess í stað jarðstreng. Ástæða þess er spennuaukning í kerfinu úr 66 kV í 132 kV. Með framkvæmdinni er sá hluti Eskifjarðarlínu 1, sem staðsettur er næst tengivirkinu Eyvindará, tengdur við þann hluta línunnar sem er nú þegar byggður fyrir 132 kV spennu. Tengivirkið Eyvindará er staðsett rétt norðan við Egilsstaði og liggur strengleið á landi Steinholts og Miðhúsa en nú þegar hefur átt sér stað samráð við landeigendur. Jarðstrengurinn þverar Miðhúsaá og fer í gegnum Miðhúsaskóg á um 500 metra kafla. Sameinast jarðstrengurinn núverandi kerfi í mastri nr. 13 á Eskifjarðarlínu 1.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd fagnar spennuhækkun á Eskifjarðarlínu 1. Nefndin telur fyrirhugaðar breytingar rúmast innan gildandi skipulags.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Breyting á deiliskipulagi Unalækjar

Málsnúmer 201702029

Fyrir umhverfis- og framkvæmdanefnd liggur niðurstaða úrskurðar Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindarmála, þar sem kærð er ákvörðun bæjarstjórnar Flótsdalshéraðs um samþykkt breytinga á deiliskipulagi fyrir lóð A6 og B2 Unalæk.

Umverfis- og framkvæmdanefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulag verði auglýst að nýju í samræmi við 2.mgr. 43. gr. laga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Erindi vegna sparkvallar við Hamra

Málsnúmer 201808176

Erindi frá stjórn knattspyrnudeildar Hattar um staðsetningu sparkvallar við Hamra.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd þakkar stjórn knattspyrnudeildar Hattar erindið.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Fjárhagsáætlun umhverfis- og framkvæmdanefndar fyrir 2019

Málsnúmer 201803145

Fyrir fundinum liggja drög að fjárhagsáætlun umhverfis- og framkvæmdanefndar fyrir 2019.

Í vinnslu

9.Starfsáætlun umhverfis- og framkvæmdanefndar 2019

Málsnúmer 201808175

Fyrir fundinum liggja drög að starfsáætlun umhverfis- og framkvæmdanefndar fyrir 2019.

Í vinnslu

10.Breyting á lóðamörkum Hömrum 18

Málsnúmer 201808194

Fyrir fundi liggur erindi frá eiganda Hamra 18 um breytingu á lóðamörkum.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd hafnar erindinu þar sem áform eru ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

11.Selskógur deiliskipulag

Málsnúmer 201606027

Fyrir fundi liggur að taka ákvörðun um áframhald á vinnu við deiliskipulag Selskógar.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að ganga að tilboði AKS teiknistofu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

12.Æskulýðsstefna Fljótsdalshéraðs

Málsnúmer 201803138

Lögð er fram til kynningar æskulýðsstefna Fljótsdalshéraðs sem samþykkt var í byrjun júní.

Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 20:15.