Tjarnarland,urðunarstaður Fyrir liggja drög að eftirlitsskýrslu frá HAUST, í kjölfar eftirfylgniferðar í Tjarnarland að ósk Umhverfisstofnunar.
Umhverfis- og héraðsnefnd felur verkefnastjóra umhverfismála að svara þeim athugasemdum sem koma fram í drögunum þegar úr þeim hefur verið leyst. Einnig leggur nefndin til að fulltrúi Fljótsdalshéraðs fari í reglubundið eftirlit á urðunarstaðinn. Nefndin fer fram á að ekki verði tekið við úrgangi frá sorpþjónustufyrirtækjum nema að fyrir liggi vigtarnóta frá gámaplaninu á Egilsstöðum.
Samþykkt með handauppréttingu
AÁ lætur bóka eftirfarandi: Leggur til daglegar eftirlitsferðir þangað til öll skilyrði starfsleyfisins eru uppfyllt.
Fyrir liggja drög að eftirlitsskýrslu frá HAUST, í kjölfar eftirfylgniferðar í Tjarnarland að ósk Umhverfisstofnunar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu umhverfis- og héraðsnefndar felur bæjarstjórn verkefnastjóra umhverfismála að svara þeim athugasemdum sem koma fram í drögunum þegar úr þeim hefur verið leyst. Einnig leggur bæjarstjórn til að fulltrúi Fljótsdalshéraðs fari í reglubundið eftirlit á urðunarstaðinn. Bæjarstjórn fer fram á að ekki verði tekið við úrgangi til urðunar nema að fyrir liggi vigtarnóta frá gámaplaninu á Egilsstöðum eða frá Seyðisfirði.
Tjarnarland, urðunarstaður Svar Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins vegna óskar um framlengingu á undanþágu frá starfsleyfi vegna sorpurðunar að Tjarnarlandi.
Umhverfis- og héraðsnefnd felur verkefnastjóra umhverfismála að svara erindi Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins dags. 24.02.2014.
Lagt var fram á fundinum svar Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins vegna óskar um framlengingu á undanþágu frá starfsleyfi vegna sorpurðunar að Tjarnarlandi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu umhverfis- og héraðsnefndar felur bæjarstjórn verkefnastjóra umhverfismála að svara erindi Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins dags. 24.02.2014.
Fyrir liggja drög að eftirlitsskýrslu frá HAUST, í kjölfar eftirfylgniferðar í Tjarnarland að ósk Umhverfisstofnunar.
Umhverfis- og héraðsnefnd felur verkefnastjóra umhverfismála að svara þeim athugasemdum sem koma fram í drögunum þegar úr þeim hefur verið leyst. Einnig leggur nefndin til að fulltrúi Fljótsdalshéraðs fari í reglubundið eftirlit á urðunarstaðinn.
Nefndin fer fram á að ekki verði tekið við úrgangi frá sorpþjónustufyrirtækjum nema að fyrir liggi vigtarnóta frá gámaplaninu á Egilsstöðum.
Samþykkt með handauppréttingu
AÁ lætur bóka eftirfarandi:
Leggur til daglegar eftirlitsferðir þangað til öll skilyrði starfsleyfisins eru uppfyllt.