Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs
1.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 425
Málsnúmer 1804013F
1.1
201801001
Fjármál 2018
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn fyrirliggjandi húsnæðisáætlun fyrir Fljótsdalshérað og lýsir ánægju sinni með hana.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að Björn Ingimarsson bæjarstjóri fari með umboð og atkvæði Fljótsdalshéraðs á fundinum.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs fagnar tillögunni sem er afrakstur víðtæks samráðs en leggur áherslu á að fjármunir fylgi þeim verkefnum sem tilgreind eru í áætluninni.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með bæjarráði og fagnar 2. grein laganna, varðandi skilgreiningu á nothæfri internetþjónustu, sem hluta af alþjónustu. Bæjarstjórn gerir að öðru leyti ekki athugasemdir við frumvarpið.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn ítrekar fyrri athugasemdir, en sveitarfélög á Austurlandi og Vestfjörðum hafa áður mótmælt þeim áformum sem fram koma í frumvarpinu harðlega. Bæjarstjórn telur eðlilegt að skipulagsvald inni á fjörðum og úti fyrir ströndum sé í höndum viðkomandi sveitarfélags.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.
2.Atvinnu- og menningarnefnd - 68
Málsnúmer 1804016F
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn vísar umfjöllun og umsögn atvinnu- og menningarnefndar til frekari vinnslu hjá umhverfis- og framkvæmdanefnd.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Fyrir atvinnu- og menningarnefnd lá til kynningar samantekt starfsmanns nefndarinnar um framkvæmd menningarstefnunnar og hvernig ábyrgðaraðilum gengur að vinna samkvæmt henni.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með atvinnu- og menningarnefnd og þakkar forstöðumönnum fyrir upplýsingarnar um framkvæmd stefnunnar og gleðst yfir því blómlega menningarstarfi sem fram fer innan stofnana sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Fyrir liggur til kynningar könnunin Erlendir gestir á Egilsstöðum sumarið 2016, sem gerð var af Rannsóknamiðstöð ferðamála í fyrra. Atvinnu- og menningarnefnd bendir á að í könnuninni koma fram upplýsingar sem í felast tækifæri til að fá ferðamenn til að dvelja lengur á svæðinu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar felur bæjarstjórn starfsmanni að kynna könnunina fyrir stjórn Þjónustusamfélagsins á Héraði. Jafnframt er lagt til að vetraropnunartími safna og sundlaugar í sveitarfélaginu verði skoðaður með það að markmiði að auka afþreyingu fyrir íbúa og ferðamenn.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lagt fram.
3.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 90
Málsnúmer 1804012F
-
Bókun fundar
Málið er í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram.
3.3
201702095
Rafbílavæðing
Bókun fundar
Málið er í vinnslu.
-
Bókun fundar
Fyrir nefndinni liggur niðurstaða grenndarkynningar vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi, Selbrekku, 2. áfangi-efra svæði. Frestur til að skila inn athugasemdum var til 9. apríl sl. Ein athugasemd barst frá Aðalsteinni Þórhallssyni og Gyðu Guttormsdóttur.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Selbrekku. Vegna upplýsinga um heildarumfang ósamræmis staðsetningar húsa að Bjarkaseli 14, 16 og 18, er sýnt að fyrri ákvörðun Fljótsdalshéraðs varðandi bílskúr Bjarkasels 16, hvíldi ekki á réttum/fullnægjandi upplýsingum. Krafa um niðurrif bygginga er afar íþyngjandi gagnvart eigendum fasteigna. Eins er ljóst að út frá jafnræðissjónarmiðum þarf Fljótsdalshérað að gæta samræmis varðandi viðbrögð vegna staðsetningar allra bygginga utan byggingarreits, á lóðunum Bjarkaseli 14, 16 og 18. Með vísan til þessa, sjónarmiða um meðalhóf og að ekki þurfi að koma til eyðileggingar verðmæta, er breyting á deiliskipulagi samþykkt eins henni er lýst í grenndarkynningu. Í ljósi athugasemda sem bárust er vísað til þess að afgreiðsla málsins er til hagsbóta fyrir eigendur allra lóða sem málið varðar. Skipulags- og byggingafulltrúa er falið að svara athugasemdinni.
Samþykkt með 8 atkv. en 1 sat hjá (GSK)
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn tekur undir umsögn umhverfis- og framkvæmdanefndar og felur starfsmanni að koma henni á framfæri.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Fyrir umhverfis- og framkvæmdanefnd lá ósk um breytingu á deiliskipulagi, Ylströnd við Urriðavatn. Fyrir liggur jákvæð umsögn Vegagerðarinnar á deiliskipulagstillögunni.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn tillöguna. Byggingarleyfi verður gefið út að lokinni minjaskráningu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Tjarnarbrautarreit á Egilsstöðum að loknum auglýsingar og kynningarferli. Í tillögunni felst breyting á lögun byggingarreits fyrir fimleika- og frjálsíþróttahús norðan núverandi íþróttahúss, skilmálar verða ítarlegri og gert er ráð fyrir boltavelli sunnan sundlaugar. Tillagan er sett fram í greinargerð og á uppdrætti sem sýnir skipulagið fyrir og eftir breytingu skv. tillögunni. Sýnt er skuggavarp nýrrar viðbyggingar. Við tillöguna barst ein athugasemd undirrituð af 8 íbúum við Furuvelli og Sólbrekku.
Athugasemdir sem bárust ásamt svörum nefndarinnar má sjá í fundargerð 90. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, sem aðgengileg er á heimasíðu sveitarfélagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd, tekur undir svör nefndarinnar við inn komnum athugasemdum og samþykkir breytinguna á deiliskipulagi Tjarnarbrautarreits.
Samþykkt með 8 atkv. en 1 sat hjá (PS)
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lögð er fram tilkynning frá Vegagerðinni um fyrirhugaða niðurfellingu Hleinargarðsvegar nr. 949-01 af vegaskrá.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd og gerir alvarlega athugasemd við áformin í ljósi þess að fyrirhuguð er atvinnustarfsemi á jörðinni.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Umsókn um byggingarleyfi fyrir bílskúr og viðbyggingu við íbúðarhús, Brávellir 2. Grenndarkynning hefur farið fram, engar athugasemdir bárust.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindið og felur Skipulags- og byggingarfulltrúa það til afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla umhverfis- og framkvæmdanefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að tillagan fái afgreiðslu í samræmi við 43. gr. skipulaglaga nr. 123/2010,að undangenginni kynningu og samráði við landeigendur.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu með 8 atkv. en 1 var fjarverandi (GJ)
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
4.Félagsmálanefnd - 163
Málsnúmer 1802017F
-
Bókun fundar
Afgreiðsla félagsmálanefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
-
-
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
5.Íþrótta- og tómstundanefnd - 41
Málsnúmer 1804014F
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Fyrir liggur styrkbeiðni frá bogfimideild Skaust vegna Íslandsmeistaramóts í bogfimi sem fer fram á Fljótsdalshéraði sumarið 2018.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu íþrótta- og tómstundanefndar samþykkir bæjarstjórn að bogfimideildin verði styrkt um kr. 100.000 sem tekið verði af lið 0689.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa greinargerðinni og bókun íþrótta- og tómstundanefndar til bæjarráðs.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa umsögn íþrótta- og tómstundanefndar til umhverfis- og framkvæmdanefndar til frekari úrvinnslu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Fyrir liggur erindi frá skákfélaginu Hróknum, þar sem gert er grein fyrir starfi síðustu ára, greint frá heimsókn Hróksins í öll sveitarfélög árið 2018 og biðlað til sveitarfélaga um stuðning við starfsemi félagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með íþrótta- og tómstundanefnd og þakkar erindið og þakkar skákfélaginu Hróknum fyrir frábært starf á síðustu árum. Að tillögu nefndarinnar samþykkir bæjarstjórn að Hrókurinn verði styrktur um kr. 25.000 sem tekið verði af lið 0689.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
6.Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs - 68
Málsnúmer 1804015F
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa umsögn og tillögum ungmennaráðs til umhverfis- og framkvæmdanefndar til frekari umfjöllunar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir að vísa málinu til skoðunar og umfjöllunar í bæjarráði.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Á fundi ungmennaráðs var farið yfir skipulag Forvarnadags á Fljótsdalshéraði sem haldinn var 12. apríl síðastliðinn.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með ungmennaráð Fljótsdalshéraðs og lýsir sérstakri ánægju sinni með daginn og fagnar góðri samvinnu ungmennaráðs og Nýungar. Jafnframt þakkar bæjarstjórn þeim aðilum sem stóðu að undirbúningi forvarnardagsins fyrir góða vinnu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með ungmennaráð Fljótsdalshéraðs og lýsir ánægju sinni með umgjörð Ungmennaþings 2018, en þema þingsins var geðheilbrigði ungs fólks. Öllum þeim sem komu fram á þinginu er einnig þakkað fyrir þeirra þátt, ekki síst Sigurbjörgu Lovísu Árnadóttur, fundarstýru. Jafnframt er Menntaskólanum á Egilsstöðum, Árna Ólasyni og Hildi Bergsdóttur, þakkað sérstaklega fyrir aðstoð og einstaka velvild.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Fundi slitið - kl. 18:30.
Fundargerðin lögð fram.