Atvinnu- og menningarnefnd

68. fundur 23. apríl 2018 kl. 17:00 - 18:15 á bæjarskrifstofu á Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Guðmundur Sveinsson Kröyer formaður
  • Ragnhildur Rós Indriðadóttir varaformaður
  • Alda Ósk Harðardóttir aðalmaður
  • Óðinn Gunnar Óðinsson
  • Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir varamaður
Fundargerð ritaði: Óðinn Gunnar Óðinsson atvinnu-, menningar- og íþróttafulltrúi
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að nýtt mál væri tekið á dagskrá sem er Barnamenningarhátíð.
Samþykkt samhljóða.

1.Selskógur deiliskipulag

Málsnúmer 201606027

Fyrir liggur samantekt frá Teiknistofunni AKS varðandi deiliskipulag Selskógar.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd lagði til á fundi sínum 11. apríl 2018 að erindið fengi umfjöllun hjá þeim nefndum sveitarfélagsins sem málið varðar. Nefndin óskar eftir því að ábendingar hafi borist fyrir 15. maí nk.

Atvinnu- og menningarnefnd fagnar góðri samantekt um skóginn. Nefndin leggur áherslu á að svæðið verði áfram nýtt til útivistar og í auknum mæli til ýmis konar menningarstarfsemi. Má þar nefna nýtingu á útileikhúsi og tónleikahald í Vémörk. Nefndinni hugnast sviðsmynd 3 í greinargerðinni.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Menningarstefna Fljótsdalshéraðs

Málsnúmer 201408090

Fyrir liggur til kynningar samantekt starfsmanns nefndarinnar um framkvæmd menningarstefnunnar og hvernig ábyrgðaraðilum gengur að vinna samkvæmt henni.

Atvinnu- og menningarnefnd þakkar forstöðumönnum fyrir upplýsingarnar um framkvæmd stefnunnar og gleðst yfir því blómlega menningarstarfi sem fram fer innan stofnana sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Erlendir gestir á Egilsstöðum sumarið 2016, könnun

Málsnúmer 201804088

Fyrir liggur til kynningar könnunin Erlendir gestir á Egilsstöðum sumarið 2016, sem gerð var af Rannsóknamiðstöð ferðamála í fyrra.

Atvinnu- og menningarnefnd bendir á að í könnuninni koma fram upplýsingar sem í felast tækifæri til að fá ferðamenn til að dvelja lengur á svæðinu. Nefndin felur starfsmanni að kynna könnunina fyrir stjórn Þjónustusamfélagsins á Héraði.
Nefndin leggur jafnframt til að vetraropnunartími safna og sundlaugar í sveitarfélaginu verði skoðaður með það að markmiði að auka afþreyingu fyrir íbúa og ferðamenn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Barnamenningarhátíð á Fljótsdalshéraði

Málsnúmer 201804134

Til kynningar og umræðu voru minnispunktar um barnamenningarhátíð á Fljótsdalshéraði sem fyrirhuguð er í september á þessu ári.

Fundi slitið - kl. 18:15.