Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri fór yfir drög að fjárhagsramma ársins 2017, en hann, ásamt bæjarstjóra, hafa endurskoðað fyrstu drög sem kynnt voru í bæjarráði. Farið yfir rammann og helstu forsendur hans og að því búnu samþykkt að senda þessi drög að ramma til nefnda sveitarfélagsins til úrvinnslu. Bæjarráð óskar eftir því að afgreiðsla nefnda liggi fyrir í byrjun júní.
3.Fundargerð 838. stjórnarfundar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Rætt um 4. lið, Skólamálanefnd sambandsins. Bæjarráð beinir því til fræðslunefndar að fara vel yfir þessi mál og fylgjast með vinnu sérfræðinga Sambandsins varðandi það. Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, þar sem kynnt er samstarfsverkefni sveitarfélaga um uppbyggingu ferðamannastaða.
Bæjarráð leggur til að Óðinn Gunnar Óðinsson atvinnu-menningar- og íþróttafulltrúi verði tengiliður sveitarfélagsins við verkefnisstjóra vegna vinnu við landsáætlun um uppbyggingu ferðamannastaða.
Bæjarráð bendir á að slíkar reglur eru ekki sérskráðar í siðareglum bæjarfulltrúa, en árlega eru þó hagsmunatengsl tengdra aðila gefin upp við gerða ársreiknings skv. reglum KPMG, endurskoðunar. Skrifstofu- og starfsmannastjóra falið að svara erindinu og send núverandi siðareglur.
Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 2. maí 2016 frá Ævari Dungal, með beiðni um aðstoð við gerð nýs vatnsbóls við Kaldá. Bæjarráð bendir á að sveitarfélagið kemur ekki að stuðningi við einkavatnsveitur í dreifbýli og hafnar því beiðni um fjárhagslega aðkomu. Hitaveita Egilsstaða og Fella sér um rekstur vatnsveitna í þéttbýli sveitarfélagsins. Jafnframt telur bæjarráð að umrædd vatnsveituframkvæmd geti verið styrkhæf í gegn um regluverk sem sniðið er að lögbýlum.
Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra umboð til að undirrita yfirlýsingu um afsal réttinda og viðurkenningu eignarréttar sveitarfélagsins á jörðinni Grunnavatni. Afgreiðsla málsins verður síðan lögð formlega fyrir bæjarráð.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til fræðslunefndar og félagsmálanefndar til umsagnar og óskar eftir afstöðu og athugasemdum frá þeim í byrjun júní.