Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn breytingu á aðalfulltrúum til setu á Landsþingi Sambands Ísl sveitarfélaga. Aðalfulltrúar verði: Anna Alexandersdóttir, Gunnar Jónsson og Stefán Bogi Sveinsson. Varamenn verði Guðmundur Kröyer, Sigrún Blöndal og Páll Sigvaldason.
Bæjarstjóri og skrifstofustjóri fóru yfir nokkrar hugmyndir sem hafa verið til skoðunar, varðandi útfærslu á endurskoðun á starfsmannastefnu sveitarfélagsins. Þeim síðan falið að vinna málið áfram.
Lagt fram og rætt erindi frá forsvarsmönnum Leikfélags Fljótsdalshéraðs, dags. 17. jan. 2015 varðandi aðstöðu fyrir leikfélagið til æfinga, geymslu og leikmyndagerðar. Bæjarráð samþykkir að halda áfram viðræðum við forsvarsmenn leikfélagsins til að reyna að finna lausn á málinu og felur bæjarstjóra að vinna það mál áfram.
Haddur Áslaugsson umsjónarmaður tölvumála sat fundinn undir þessum lið og fylgdi málinu úr hlaði. Að lokinni yfirferð yfir málið samþykkti bæjarráð að taka upp Íslykil/rafræn skilríki og verður kostnaðurinn færður á bókhaldslykilinn 21-41 rafræna stjórnsýslu.
Lagður fram til kynningar og umræðu tölvupóstur frá Hirti Magnasyni dýralækni á Egilsstöðum varðandi bakvaktir dýralæknis. Einnig lagt fram svar Sigurborgar Daðadóttur yfirdýralæknis hjá Matvælastofnun við tölvupósti Hjartar og svar Hjartar við þeim pósti. Málið er í vinnslu hjá umhverfis- og framkvæmdanefnd og mun þaðan koma til umfjöllunar á næsta bæjarstjórnarfundi.
Í lok fundar fór bæjarráðið í skoðunarferð í nýbyggingu hjúkrunarheimilisins við Blómvang 1.
Rætt um ársuppgjör 2014 og er stefnt að því að leggja ársreikninginn fram til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar þann 1. apríl nk.