Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að á haustmánuðum komi atvinnu- og menningarnefnd, bæjarstjórn og umhverfis- og framkvæmdanefnd saman til fundar. Þar verði farið yfir ástand, horfur og framtíðarsýn í atvinnumálum, skipulagsmálum og uppbyggingu innviða í sveitarfélaginu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
2.Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi 2016
Á fundi bæjarstjórnar 1. júní 2016 var óskað eftir að nefndir sveitarfélagsins sendi bæjarráði fyrir sumarleyfi hugmyndir að umfjöllunarefnum á aðalfundi SSA sem haldinn verður 7.-8. október á þessu ári.
Nefndin leggur til að til umræðu á aðalfundi SSA í haust verði eftirfarandi: - Tekjur sveitarfélaga af ferðamönnum - Frekari stuðningur ríkisins við menningarmiðstöðvar - Efling nýsköpunar á Austurlandi - Skattkerfið sem tæki til búsetueflingar - Nýting og búseta á ríkisjörðum - Læknaskortur í fjórðungnum - Efling starfsemi ríkisstofnana á Austurlandi.
Atvinnu- og menningarnefnd vísar drögum að fjárhagsætlun 2017 nefndinnar til bæjarráðs. Nefndin bendir á að lítið fé er lagt í atvinnumálasjóð, annað árið í röð, og leggur til að honum verði markaður fastur tekjustofn þannig að efla megi sjóðinn.
Fyrir liggur humynd af vefsvæðinu Betra Fljótsdalshérað þar sem lagt er til að vekja Gálgaklett til vegs og virðingar í samhengi við þá sögulegu viðburði sem þar áttu sér stað á fyrri tímum.
Atvinnu og menningarnefnd þakkar fyrir ábendinguna og leggur til að gert verði upplýsingaskilti sem geri sögustaðnum skil. Starfsmanni falið að koma verkefninu í framkvæmd.
Meðfylgjandi er stutt greinargerð um málið. Einnig gildandi reglur um farandsölu og lögreglusamþykkt sveitarfélagsins. Málið var áður á dagskrá nefndarinnar 23. maí 2016.
Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að reglur sveitarfélagsins um farandsölu, frá 2001, verði aflagðar. Jafnframt leggur nefndin til að í reglum sveitarfélagsins um notkun fasteigna Fljótsdalshéraðs, frá 2015, verði skerpt á því að fasteignir sveitarfélagsins verði ekki leigðar út til farandsala.
Fyrir liggja minnispunktar um leiðir til að halda samkeppni um gerð útilistaverks í tilefni þess að á næsta ári eru 70 ár liðin frá því Egilsstaðakauptún var stofnað með lögum. Nefndin fól starfsmanni nefndarinnar og forstöðumanni Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs að útfæra leiðir á fundi sínum 9. maí 2016.
Ativnnu og menningarnefnd felur starfsmanni nefndarinnar og forstöðumanni Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs að útfæra nánar leið tvö í fyrirliggjandi minnispunktum og leggja fyrir nefndina.
Jafnframt felur nefndin starfsmanni að þróa áfram hugmyndir um alþýðulistagarð.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
7.Umsókn um styrk til flutnings dægurlagatónlistar í Sláturhúsinu og Dyngjunni
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.