Fyrir liggur styrkumsókn frá Erlu Dóru Vogler, dagsett 31. maí 2016, til flutnings dægurlagatónlistar í Sláturhúsinu og Dyngjunni í sumar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn að verkefnið verði styrkt um kr. 50.000 sem tekið verði af lið 0589.
Atvinnu og menningarnefnd leggur til að verkefnið verði styrkt um kr. 50.000 sem tekið verði af lið 0589.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.