Umhverfis- og héraðsnefnd Fljótsdalshéraðs

55. fundur 26. mars 2013 kl. 17:00 - 19:35 á bæjarskrifstofu á Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Ester Kjartansdóttir formaður
  • Eyrún Arnardóttir aðalmaður
  • Aðalsteinn Ásmundarson aðalmaður
  • Guðríður Guðmundsdóttir varamaður
  • Vilhjálmur Snædal varamaður
  • Úlfar Trausti Þórðarson framkvæmda- og þjónustufulltrúi
Fundargerð ritaði: Úlfar Trausti Þórðarson framkvæmda- og þjónustufulltrúi

1.Verkferlar Búfjáreftirlits

Málsnúmer 201303131

Verkferlar Búfjáreftirlits
Eyrún Arnardóttir héraðsdýralæknir kynnir vekferla hjá búfjáreftirliti
Umhverfis- og héraðsnefnd þakkar Eyrúnu fyrir kynninguna. Nefndin bendir á að hægt er að senda inn ábendingar til Matvælastofnunar á "Hafa samband" hnappi á heimasíðunni www.mast.is
Samþykkt með handauppréttingu.

2.Vinnuskóli 2013

Málsnúmer 201301102

Vinnuskóli 2013
Tillaga að breytingu á vinnuframlagi nemenda við Vinnuskólann. Tilagan felur í sér óbreytt laun og möguleika á auka vinnuviku fyrir þá sem standa sig vel.

Umhverfis- og héraðsnefnd samþykkir framlagða tillögu

Samþykkt með handauppréttingu.

3.Göngur merktra laxfiska í Lagarfljóti árin 2010-2012

Málsnúmer 201302082

Fyrir liggur skýrsla frá Landsvirkjun um Göngur merktra laxfiska í Lagarfljóti árin 2010-2012

Umhverfis- og héraðsnefnd bendir á að í ljósi breytinga á lífríki Lagarfljóts er nauðsynlegt að fylgjast áfram með fiskgengd laxfiska. Nefndin bendir á að mikilvægt er að huga vel að umgengni um þverárnar, þannig að búsvæðum laxfiska sé ekki spillt og aðgengi að hrygningarslóð og uppeldisstöðum sé ekki tálmað.

Samþykkt með handauppréttingu

4.55.fundur Svæðisráðs Austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs

Málsnúmer 201303022

Fyrir liggur fundargerð 55.fundar Svæðisráðs Austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs

Lagt fram til kynningar

5.Fundargerð 62.fundar Landbótasjóðs Norður Héraðs/Ársreikningur 2012

Málsnúmer 201303002

Fyrir liggur fundargerð 62.fundar Landbótasjóðs Norður Héraðs/Ársreikningur 2012

Lagt fram til kynningar.

6.Fundargerð 63.fundar Landbótasjóðs Norður Héraðs

Málsnúmer 201303111

Fyrir liggur fundargerð 63.fundar Landbótasjóðs Norður Héraðs.

Lagt fram til kynningar

7.Beiðni um flutnings sauðfjár milli býla.

Málsnúmer 201303106

Fyrir liggur beiðni um flutnings sauðfjár frá Hryggstekk yfir á Arnhólsstaði í Skriðdal.

Eyrún vék af fundi undir þessum lið.

Umhverfis- og héraðsnefnd gerir ekki athugasemd við flutninginn að því tilskyldu að óháður eftirlitsaðili hafi áður gert úttekt á húsnæðinu og öll skilyrði "reglugerðar um eftirlit með aðbúnaði og heilbrigði sauðfjár og geitfjár og eftirlit með framleiðslu kjöts og annara afurða þeirra" nr. 60/2000 séu uppfyllt.

Samþykkt með handauppréttingu.

8.Fjárhagsáætlun 2014

Málsnúmer 201302034

Fjárhagsáætlun 2014 og þriggja ára áætlun

Umhverfis- og héraðsnefnd hefur unnið áætlun um umhverfisverkefni komandi ára út frá ábendingum íbúa og skv. fyrri starfsáætlun nefndarinnar. Nefndin leggur til að verkefnin; Tjarnagarður, Selskógur og Merkingar séu forgangsverkefni 1-3 og verkefnin; Aðkoma í þéttbýli, Hundasvæði og Krummaklettar (reiðhjólatorfærubraut) komi þar á eftir.

Nefndin bendir á að í áætluninni er gert ráð fyrir uppbyggingu og viðhaldi göngu- og hjólreiðastíga og óskar formaður eftir að kynna verkefnið fyrir skipulags- og mannvirkjanefnd.

Samþykkt með handauppréttingu.

9.Reglugerð um eftirlit Umhverfisstofnunar með náttúru landsins

Málsnúmer 201302184

Fyrir liggja drög að reglugerð um eftirlit Umhverfisstofnunar með náttúru landsins

Umhverfis- og héraðsnefnd gerir ekki athugasemdir við drögin en leggur áherslu á að Umhverfisstofnun nýti framsalsheimild þá er tilgreind er í drögunum til framsals verkefna heim í hérað.

Samþykkt með handauppréttingu

10.Frumvarp til laga um vatnalög/Til umsagnar

Málsnúmer 201303076

Fyrir liggur til umsagnar frumvarp til laga um vatnalög.

Umhverfis- og héraðsnefnd gerir ekki athugasemd við frumvarpið

Samþykkt með handauppréttingu.

(VS) situr hjá.

Fundi slitið - kl. 19:35.