Umhverfis- og framkvæmdanefnd

64. fundur 22. febrúar 2017 kl. 17:00 á bæjarskrifstofu á Egilsstöðum
Nefndarmenn
  • Árni Kristinsson formaður
  • Guðrún Ragna Einarsdóttir aðalmaður
  • Ester Kjartansdóttir aðalmaður
  • Páll Sigvaldason aðalmaður
  • Þórhallur Borgarson varamaður
  • Vífill Björnsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Vífill Björnsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að einum lið yrði bætt við, Lagarfell 3, umsókn um byggingarleyfi og verður sá liður nr. 9.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

1.Fundargerð 133. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands

Málsnúmer 201702090

Lögð er 133.fundargerð Heilbrigðisnefndar Austurlands til kynningar.

Lagt fram til kynningar.

2.Birting gagna um meðhöndlun úrgangs á heimasíðu Umhverfisstofnunar

Málsnúmer 201702086

Lagt er fyrir nefndina bréf frá Umhverfisstofnun, Birting gagna á heimasíðu Umhverfisstofnunar.
Nú stendur til að birta skýrslur rekstraraðila um þann úrgang sem meðhöndlaður var á árunum 2014-2015.
Því er rekstraraðilum nú gefið tækifæri til að koma með athugasemdir til stofnunarinnar um slíkar upplýsingar.
Frestur til að skila inn athugasemdum til Umhverfisstofnunar er til 27.febrúar 2017.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur starfsmanni að yfirfara gögnin og gera leiðréttingar ef þörf er á og koma þeim upplýsingum á Umhverfisstofnun.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Flugvöllur aðalskipulagsbreyting

Málsnúmer 201503010

Lögð er fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 að lokinni auglýsingu skv. 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Ábendingar/athugasemdir bárust á kynningartíma.

Jafnframt er til umræðu og afgreiðslu athugasemdir frá eigendum og bændum á Egilsstöðum 1 sem vísað var til nefndarinnar af fundi bæjarráðs nr.373 þann 13. febrúar sl.
Fyrir liggur umsögn Jón Jónssonar hrl. á skipulagsferil málsins.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd hefur yfirfarið þær umsagnir / ábendingar og athugasemdir sem bárust á kynningartíma.

Lögð eru fram viðbrögð við athugasemdum við tillögu að breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna athafnasvæðis við Egilsstaðaflugvöll þar sem rakin eru efnisatriði athugasemda sem fram komu á auglýsingartíma.

Jafnframt er lögð fram umsögn Jóns Jónsson hrl. sem svar við athugasemdum eigenda og bænda á Egilsstöðum 1.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd telur að ekki sé tilefni til breytinga á tillögunni eða málsmeðferðinni vegna fyrrgreindra athugasemda og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja skipulagsbreytinguna sbr. 32.gr.Skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan borin upp, já sögðu fjórir (ÁK, PS, ÞB og EK) og einn greiðir ekki atkvæði (GRE).

4.Frumvarp til laga um farþegaflutninga og farmflutninga

Málsnúmer 201702075

Lagt er fyrir nefndina frumvarp til laga um farþegaflutninga og farmflutninga og bókun bæjarstjórnar til kynningar.

Lagt fram til kynningar.

5.Lausar lóðir, yfirferð 2017

Málsnúmer 201701160

Á fundi Umhverfis- og framkvæmdanefndar nr. 63 var Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að taka saman lista yfir lóðir sem þarf að innkalla og leggja fyrir næsta fund nefndar.
Lagður er listi yfir þær lóðir sem lagt er til með að innkalla.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að eftirtaldar lóðir verði innkallaðar.
- Fjóluhvammur 3, 4 og 6.
- Fífuhvammur 5.
- Fénaðarklöpp 1 og 3.
- Skjólvangur 4, 5 og 6.
- Sólvangur 1 og 3.
- Skógarsel 20.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Rafbílavæðing

Málsnúmer 201702095

Lagt er fyrir nefndina bréf Ísorku vegna rafbílavæðingar á Fljótsdalshéraði.
Tilefni bréfsins er tvíþætt, annarsvegar að minna á uppsetninguna og hinsvegar að bjóða upp á að tengja stöðina við Ísorku.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd óskar eftir því að bréfritari kynni erindið frekar fyrir nefndinni, að öðru leiti er erindið lagt fram til kynningar.

7.Starfsáætlun umhverfis- og framkvæmdanefndar 2017

Málsnúmer 201701118

Lagt er fyrir nefndina Starfsáætlun Umhverfis- og framkvæmdanefndar 2017 til staðfestingar.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir starfsáætlun 2017.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Umsókn um stofnun nýrrar landeignar

Málsnúmer 201702107

Lögð er fram Umsókn um stofnun nýrrar landaeignar í fasteignaskrá.
Guðmundur Ármannsson kt. 240355-5909 óskar eftir að stofnuð verði ný landaeignir úr Stakkabergi, landnr.201328. Heiti nýrrar lóðar verði Grásteinn.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið og felur Skipulags- og byggingarfulltrúa úrlausn erindisins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

9.Lagarfell 3, umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201602051

Lagt er fyrir erindi Björn Sveinssonar fyrir hönd lóðarhafa að Lagarfelli 3.
Óskað er eftir samþykkt byggingaráforma / breytinga á norðanverðu húsinu, 16 fermetra viðbygging að brúttó grunnfleti og 41m3 að rúmmáli. Viðbyggingin norðan við er 3,2m x 5m að stærð og er 6,02 frá norðvestur horni núverandi húss.
Meðfylgjandi eru uppdrættir hönnuðar sem sýna bæði samþykkta viðbyggingu til suðurs og viðbygginguna til norðurs sem erindið fjallar um.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að senda erindið í grenndarkynningu skv. 44.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið.