Birting gagna um meðhöndlun úrgangs á heimasíðu Umhverfisstofnunar

Málsnúmer 201702086

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 64. fundur - 22.02.2017

Lagt er fyrir nefndina bréf frá Umhverfisstofnun, Birting gagna á heimasíðu Umhverfisstofnunar.
Nú stendur til að birta skýrslur rekstraraðila um þann úrgang sem meðhöndlaður var á árunum 2014-2015.
Því er rekstraraðilum nú gefið tækifæri til að koma með athugasemdir til stofnunarinnar um slíkar upplýsingar.
Frestur til að skila inn athugasemdum til Umhverfisstofnunar er til 27.febrúar 2017.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur starfsmanni að yfirfara gögnin og gera leiðréttingar ef þörf er á og koma þeim upplýsingum á Umhverfisstofnun.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.