Fréttabréf Skólamötuneytis lagt fram til kynningar. Sigurlaug Jónasdóttir, skólastjóri Egilsstaðaskóla, kynnti ýmsa nýbreytni í tengslum við framkvæmd í hádegi í Egilsstaðaskóla. Fiskmáltíðir í skólastofnunum ræddar, ekki er gert ráð fyrir breytingum hvað þær varðar. Fræðslunefnd ítrekar mikilvægi þess að ítarlegar upplýsingar varðandi stöðu málsins liggi sífellt fyrir. Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Í ljósi erinda sem borist hafa hefur verið farið í eftirfarandi aðgerðir:
- Skerpt á vinnulagi á matarfundi m.a. með því að gera gátlista til að tryggja fjölbreytni matseðilsins. - Síðasti matseðill yfirfarinn af næringarfræðingi og reyndist uppfylla ráðleggingar um matarræði frá landlæknisembættinu. - Framsetning á matseðli gerð skýrari. - Unnið að sérstakri undirsíðu um Skólamötuneytið á heimasíðu sveitarfélagsins með hagnýtum upplýsingum - Útgáfa á fréttabréfi sem sent verður til foreldra. - Undirbúningur að stefnu Fljótsdalshéraðs fyrir Skólamötuneytið.
Fræðslustjóra falið að svara erindunum. Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Lögð fram drög af stefnu skólamötuneytisins. Fræðslustjóra falið að senda drögin til umsagnar hjá þeim stofnunum sem fá máltíðir frá mötuneytinu. Stefnan kemur síðan til endanlegrar afgreiðslu í nefndinni. Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.