Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs

294. fundur 08. maí 2019 kl. 17:00 - 18:15 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Stefán Bogi Sveinsson forseti
  • Anna Alexandersdóttir 1. varaforseti
  • Steinar Ingi Þorsteinsson 2. varaforseti
  • Gunnar Jónsson bæjarfulltrúi
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir bæjarfulltrúi
  • Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir bæjarfulltrúi
  • Kristjana Sigurðardóttir bæjarfulltrúi
  • Björg Björnsdóttir bæjarfulltrúi
  • Hannes Karl Hilmarsson bæjarfulltrúi
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason skrifstofu- og starfsmannastjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Bragason skrifstofustjóri

1.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 468

Málsnúmer 1904016F

Til máls tók: Anna Alexandersdóttir, sem kynnti fundargerðin og lagði fram drög að bókunum.

Fundargerðin lögð fram.

2.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 469

Málsnúmer 1905001F

Til máls tóku: Anna Alexandersdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Gunnhildur Ingvarsdóttir, sem ræddi lið 2.4 og Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi liði 2.4, 2.8 og 2.11.

Fundargerðin lögð fram.
  • 2.1 201901002 Fjármál 2019
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með bæjarráði um að unnið verði áfram að uppbyggingu leikskóla í Fellabæ og að skipuð verði byggingarnefnd sem fær það hlutverk að skoða valkosti fyrir nýbyggingu fyrir starfsemina.
    Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að tilnefna Berglindi Hörpu Svavarsdóttur, Sigurð Ragnarsson, Benedikt Hlíðar Stefánsson og Aðalstein Ásmundarson í byggingarnefndina. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að foreldraráði annars vegar og starfsfólki leikskólans Hádegishöfða hins vegar, verði gefinn kostur á að tilnefna áheyrnarfulltrúa í nefndina.
    Að tillögu bæjarráðs er bæjarstjóra falið að ganga frá samningi við Þórhall Pálsson um verkefnastjórnun og að verkefnastjóra verði falið að kalla byggingarnefndina saman til fyrsta fundar.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Fram er komin beiðni frá Hússtjórnarskólanum Hallormsstað um að fá framvegis að nýta sér nafnið Hallormsstaðaskóli á skólann. Óskað er eftir því við sveitarfélagið að það afsali sér rétti að nafninu.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu bæjarráðs fellst bæjarstjórn á beiðnina og felur bæjarstjóra að stíga nauðsynleg skref til þess að af þessu geti orðið.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Í bæjarráði var lagt fram erindi frá Bylgju Rún Ólafsdóttur, vegna beiðni hennar og sambýlismanns hennar um að fá jörðina Unaós til leigu.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Fljótsdalshérað ítrekar þá afstöðu sína, sem margoft hefur komið fram, að tafarlaust beri að auglýsa ríkisjörðina Unaós/Heyskála lausa til ábúðar. Erindi það sem hér liggur fyrir er staðfesting á því sem sveitarfélagið hefur ítrekað komið á framfæri, að eftirspurn er eftir jörðinni til ábúðar. Bæjarstjórn vísar allri ábyrgð á þeirri pattstöðu sem uppi er varðandi málefni Unaóss á hendur Ríkiseignum og fjármálaráðuneytinu. Fljótsdalshérað biðlar til fjármálaráðherra að höggva á þennan hnút og leggja fyrir Ríkiseignir að jörðin verði auglýst til ábúðar í samræmi við gildandi reglur.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með bæjarráði og ítrekar þau meginatriði sem áður hefur verið komið á framfæri á fyrri stigum, sem eru eftirfarandi:

    1) Skýra þarf samspil stjórna og ráða sem sveitarfélög eiga aðild að annars vegar og forstjóra og annarra starfsmanna stofnunarinnar hins vegar.
    2) Mikilvægt er að stjórnun svæða og ákvarðanir séu á hendi heimafólks. 3) Mikilvægt er að innviðauppbygging nýrrar stofnunar verði víða um land í samræmi við markmið 4. tl. 5. gr. frumvarpsdraganna.
    4) Áríðandi er að innan hvers umdæmis sé starfstöð með föstu starfsfólki. 5) Mikilvægt er að stofnunin verði landsbyggðastofnun og að staðsetning höfuðstöðva hennar endurspegli það.
    6) Forsenda þess að vel takist til með nýja stofnun, ef af verður, er að tryggt verði nægt fjármagn til að hún geti sinnt verkefnum sínum.

    Það er mat bæjarstjórnar að ekki hafi að fullu verið komið til móts við þessi atriði. Meðal annars er í frumvarpinu ekki tekið á því hvar höfuðstöðvar eða aðsetur framkvæmdastjórnar og annarrar miðlægrar stjórnsýslu eiga að vera og óljóst hvaða þýðingu breytingarnar hafa varðandi núverandi skrifstofur Vatnajökulsþjóðgarðs.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 111

Málsnúmer 1904011F

Til máls tóku: Stefán Bogi Sveinsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum og Björg Björnsdóttir, sem ræddi lið 3.10.

Fundargerðin lögð fram.

4.Atvinnu- og menningarnefnd - 86

Málsnúmer 1904009F

Til máls tók: Gunnhildur Ingvarsdóttir, sem kynnti fundargerðin og lagði fram drög að bókunum.

Fundargerðin lögð fram.

5.Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 275

Málsnúmer 1904013F

Til máls tók: Berglind Harpa Svavarsdóttir, sem kynnti fundargerðin og lagði fram drög að bókunum.

Fundargerðin lögð fram.

6.Íþrótta- og tómstundanefnd - 52

Málsnúmer 1903024F

Til máls tóku: Berglind Harpa Svavarsdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Björg Björnsdóttir, sem ræddi lið 6.1. Anna Alexandersdóttir, sem ræddi lið 6.1. Berglind Harpa Svavarsdóttir, sem ræddi lið 6.1 og Gunnhildur Ingvarsdóttir, sem ræddi lið 6.1.

Fundargerðin lögð fram.

7.Jafnréttisnefnd Fljótsdalshéraðs - 67

Málsnúmer 1905003F

Til máls tók: Anna Alexandersdóttir, sem kynnti fundargerðin og lagði fram drög að bókun.

Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram.
    Að tillögu jafnréttisnefndar samþykkir bæjarstjórn þær textabreytingar sem gerðar hafa verið á jafnréttisáætlun sveitarfélagsins, og áætlunina með áorðnum breytingum eins og hún liggur hér fyrir fundinum.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 18:15.