Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs

271. fundur 21. mars 2018 kl. 17:00 - 18:30 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Anna Alexandersdóttir forseti
  • Sigrún Blöndal 1. varaforseti
  • Guðmundur Sveinsson Kröyer bæjarfulltrúi
  • Árni Kristinsson bæjarfulltrúi
  • Páll Sigvaldason bæjarfulltrúi
  • Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir bæjarfulltrúi
  • Þórður Mar Þorsteinsson bæjarfulltrúi
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason skrifstofu- og starfsmannastjóri
  • Aðalheiður Björt Unnarsdóttir varamaður
  • Sigvaldi H Ragnarsson varamaður
Fundargerð ritaði: Stefán Bragason skrifstofustjóri

1.Ársreikningur 2017

Málsnúmer 201803019

Björn Ingimarsson bæjarstjóri lagði fram ársreikning Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2017 til síðari umræðu í bæjarstjórn. Aðrir sem til máls tóku undir þessum lið voru: Sigrún Blöndal og Gunnhildur Ingvarsdóttir.

Helstu niðurstöðutölur eru sem hér segir:

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2017 námu 4.277 milj. kr. samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 3.839 millj. kr.
Rekstrargjöld fyrir fjármagnsliði og afskriftir námu alls 3.439 millj. kr. í samanteknum ársreikningi 2017 fyrir A og B hluta, þar af námu rekstrargjöld A hluta 3.278 millj. kr. Afskriftir ársins í A og B hluta námu 284 millj. og þar af 176 millj. í A hluta. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 343 millj. í samanteknum A og B hluta, þar af 260 millj. í A hluta.
Eftir fjármagnsliði og afskriftir var rekstrarafkoma ársins jákvæð um 200 millj. kr. í samanteknum A og B hluta. Þar af var afkoma A-hluta jákvæð um 123 millj. kr. Fyrir fjármagnsliði var rekstrarniðurstaða A og B hluta jákvæð um 554 millj. kr., þar af 385 millj. kr. í A hluta.
Veltufé frá rekstri var jákvætt um 633 millj. kr. hjá samstæðu A og B hluta, þar af er veltufé frá rekstri í A hluta jákvætt um 422 millj. kr.
Fjárfestingahreyfingar ársins námu nettó 277 millj. kr. hjá samstæðu A og B hluta, þar af 74 millj. í A hluta.
Engar lántökur voru á árinu 2017, en afborganir af lánum og leiguskuldbindingum námu 503 millj. kr. á árinu 2017.
Eignir samkvæmt efnahagsreikningi námu 8.839 millj. kr. í árslok 2017 fyrir A og B hluta, þar af nema heildareignir A hluta 5.460 millj. kr. í árslok 2017.

Heildarskuldir og skuldbindingar námu 8.144 millj. kr. í árslok 2017 fyrir A og B hluta. Þar af nema heildarskuldir og skuldbindingar A hluta 4.981 millj. kr.

Ársreikningurinn í heild sinni er að öðru leyti aðgengilegur á heimasíðu Fljótsdalshéraðs.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir framlagðan samstæðureikning Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2017 við síðari umræðu, en fyrri umræða um hann fór fram 7. mars sl. og var hann birtur í Kauphöllinni þann sama dag.

Með ársreikningi liggur einnig fyrir endurskoðunarskýrsla KPMG og ábyrgðar- og skuldbindingaryfirlit í árslok 2017.

Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að boða til íbúafundar í Egilsstaðaskóla mánudaginn 26. mars kl. 20, þar sem ársreikningurinn verður kynntur.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 420

Málsnúmer 1803006F

Til máls tóku: Sigrún Blöndal, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Einnig ræddi hún sérstaklega lið 2.10. Þórður Mar Þorsteinsson, sem ræddi lið 2.14. Guðmundur Sveinsson Kröyer, sem ræddi lið 2.10 og bar fram fyrirspurn og lið 2.14. Gunnhildur Ingvarsdóttir, sem ræddi lið 2.10 og svaraði fyrirspurn og Sigrún Blöndal, sem ræddi lið 2.10.

Fundargerðin lögð fram.

3.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 421

Málsnúmer 1803010F

Til máls tók: Sigrún Blöndal, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Einnig ræddi hún sérstaklega lið 3.6.

Fundargerðin lögð fram:
  • 3.1 201801001 Fjármál 2018
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Kynntur viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2018, vegna framlaga Minjasafns og Héraðsskjalasafns út af viðbótarframlagi í Lífeyrissjóðinn Brú. Um er að ræða hlutfallslegt framlag Fljótsdalshéraðs.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að hækka framlög til Héraðsskjalasafns og Minjasafns um kr. 2.590.000. Fjármagnið verður tekið af lið 27010 og hefur ekki áhrif á rekstarniðurstöðu og efnahag sveitarfélagsins.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lögð hafa verið fram drög að stefnumótandi byggðaáætlun 2018 - 2024. Áætlunin er til umsagnar í samráðsgátt Stjórnarráðsins og er frestur til að skila inn umsögnum til miðvikudagsins 21. mars.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með bæjarráði og fagnar framkomnum drögum og hvetur sem flesta til að kynna sér efni áætlunarinnar.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • 3.7 201702061 Ungt Austurland.
    Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

4.Atvinnu- og menningarnefnd - 65

Málsnúmer 1803007F

Til máls tók: Guðmundur Sveinsson Kröyer, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum.

Fundargerðin lögð fram.

5.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 87

Málsnúmer 1802022F

Til máls tóku: Árni Kristinsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Sigrún Blöndal, sem vakti athygli á vanhæfi sínu vegna liðar 5.8 og úrskurðaði forseti hana vanhæfa. Sigvaldi Ragnarsson, sem ræddi lið 5.4. Árni Kristinsson, sem ræddi lið 5.4 og Sigvaldi Ragnarsson, sem ræddi lið 5.4.

Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • 5.2 201802161 Bæjarstjórabekkurinn
    Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Fyrir fundi umhverfis- og framkvæmdanefndar lá erindi frá Veiðifélagi Jökulsár á Dal þar sem félagið fer þess á leit við Fljótsdalshérað að sveitarfélagið stuðli að eflingu á skipulagðri eyðingu minks við Jökulsá á Dal og hliðarár hennar og beri kostnað af þeim aðgerðum. Málið var áður á dagskrá 86. fundi nefndarinnar.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdarnefnd hafnar bæjarstjórn erindinu þar sem nú þegar er mjög skilvirk eyðing minks í sveitafélaginu.

    Samþykkt með 8 atkv. en 1 sat hjá (SHR)
  • Bókun fundar Erindi frá Jóni Runólfi Jónssyni og Mörtu Kristínu Sigurbergsdóttur þar sem óskað er eftir umsögn um landskipti og samþykki skráningu nýrrar landeignar í fasteignaskrá, Hallbjarnarstaðir 1.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir Bæjarstjórn að veitt verði jákvæð umsögn um erindið. Jafnframt felur bæjarstjórn skipulags- og byggingarfulltrúa að stofna lóðina í fasteignaskrá.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Fyrir liggur erindi frá Birni Sveinssyni fyrir hönd Grásteins ehf. þar sem óskað er eftir skráningu á 4 nýjum landeignum í fasteignaskrá.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að stofna lóðirnar í fasteignaskrá.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu, en einn var fjarverandi (S.Bl.).
  • Bókun fundar Í vinnslu.

6.Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs - 67

Málsnúmer 1803008F

Til máls tók: Björn Ingimarsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum.

Fundargerðin lögð fram.
  • 6.1 201803055 Forvarnadagur 2018
    Bókun fundar Umræður um Forvarnadag á Fljótsdalshéraði 2018.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með Ungmennaráði og fagnar því að Forvarnadagur sé haldinn ár hvert og að Ungmennaráð fái tækifæri til að hafa aðkomu að deginum.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • 6.2 201711032 Ungmennaþing 2018
    Bókun fundar Ungmennaþing verður haldið 12. apríl 2018 og verður þemað geðheilbrigði ungs fólks.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn fagnar þessu framtaki ungmennaráðs og hvetur ungt fólk og íbúa sveitarfélagsins til að taka þátt í þinginu.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 18:30.