Bæjarstjóri fór yfir viðræður við kvenfélag- og búnaðarfélag Eiðaþinghár um húsnæði barna- og leikskólans á Eiðum. Einnig fór hann yfir þann búnað sem þar er til staðar og tilheyrir skólanum. Bæjarráð samþykkir að gengið verði frá samningi um sölu á viðkomandi eignum og lausafé og að samningurinn verður lagður fyrir næsta fund bæjarráðs.
Lagt fram erindi frá stjórn Þjónustusamfélagsins á Héraði, með tillögum um nokkrar úrbætur tengdar miðbænum fyrir sumarið 2016.
Bæjarráð þakkar þjónustusamfélaginu fyrir ýmsar góðar ábendingar og samþykkir að vísa áherslupunktunum til umhverfis- og framkvæmdanefndar til nánari umræðu og úrvinnslu.
5.Tillaga til þingsályktunar um embætti umboðsmanns aldraðra
Lagt fram bréf frá Landsvirkjun varðandi álagningar fasteignaskatts á vatnsréttindi Kárahnjúkavirkjunar. Einnig farið yfir drög að svarbréfi sem bæjarstjóri kynnti. Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að svara bréfi Landsvirkjunar í þeim anda sem kynnt var á fundinum.
Farið yfir stöðuna í málinu og samskipti SSA og Fjarskiptasjóðs varðandi fyrirhugaða framkvæmd á lagningu ljósleiðara í dreifðum byggðum landsins á líðandi ári.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram og gæta hagsmuna sveitarfélagsins í samræmi við það sem rætt var á fundinum.
Bæjarráð leggur áherslu á það við skipulagsyfirvöld í Reykjavík að tryggt verði að starfssemi Reykjavíkurflugvallar verði óskert og þá ekki síst með tilliti til öryggis þeirra íbúa landsins sem geta átt allt sitt undir óhindruðum samgöngum til Reykjavíkur.