Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri fór yfir nokkra liði sem tengjast fjármálum og rekstri sveitarfélagsins og kynnti bæjarráði. Einnig fór Björn Ingimarsson bæjarstjóri yfir nokkur mál og kynnti þau.
Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri fór yfir vinnu nefnda og starfsmanna við gerð fjárhagsáætlunar 2020, en flestar nefndir eru nú búnar að skila inn fyrstu áætlunum sínum. Að öðru leyti er áætlunin í vinnslu.
3.Fundagerð 257. fundar Hitaveitu Egilsstaða og Fella
Farið yfir fundargerð frá fundi sem starfsmenn Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs héldu um málið 19. mars sl.
Bæjarráð áréttar að kjósi sveitarfélög að skilgreina fjárlaus svæði í sínu skipulagi, eins og Fjarðabyggð hefur gert í þessu tilfelli, þá er það á ábyrgð þess sveitarfélags að girða viðkomandi svæði af. Kjósi Vegagerðin að girða af svæði til að halda búfé frá vegstæðum er henni það heimilt að höfðu samráði við landeigendur og þá sem eiga upprekstrarrétt á viðkomandi svæði. Mikilvægt er að slíkar framkvæmdir gangi ekki á rétt nýtingaraðila. Bæjarráð leggur áherslu á það að þau landsvæði sem um er fjallað og eru innan Fljótsdalshéraðs, eru landbúnaðarsvæði samkvæmt skipulagi sveitarfélagsins og ekki gert ráð fyrir takmörkunum á landnotkun hvað umferð og beit búfjár á slíkum svæðum varðar.
Bæjarstjóra falið að koma niðurstöðu bæjarráðs á framfæri við aðila máls og hefur Fljótsdalshérað þar með lokið aðkomu sinni að viðræðum um þetta mál.
Fjallað var um vinnuna við innleiðingu persónuverndarlöggjafarinnar. Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að gera viðauka við samning um vinnu við innleiðingu persónuverndarlöggjafar og starf persónuverndarfulltrúa, sem gildir til loka árs 2019.
7.Samráðsgátt - Grænbók um stefnu í málefnum sveitarfélaga
Boðað hefur verið til fundar þar sem fulltrúar sveitarfélaga á Austurlandi munu hitta fulltrúa úr starfshópi um stefnu ríkisins um málefni sveitarfélaga. Fulltrúar úr bæjarráði munu sitja þann fund og kynna sér málið nánar og koma á framfæri upplýsingum eftir því sem þörf krefur.
Málinu að öðru leyti frestað til fundar bæjarráðs 3. júní.
Fulltrúar Orkusölunnar Magnús Kristjánsson, Þórhallur Halldórsson og Pálmi Sigurðsson komu á fundinn kl. 10 .
Farið var yfir hugmyndir að uppsetningu vindmylla á Út-Héraði, bæði í nánd við Lagarfoss og eins í landi Klúku. Einnig farið yfir rannsóknaleyfi fyrirtækisins á vatnsaflsvirkjunum innan sveitarfélagsins og væntanlega viðhaldsvinnu við núverandi virkjanir.
Einnig fór Björn Ingimarsson bæjarstjóri yfir nokkur mál og kynnti þau.