Á fundinn undir þessum lið mætti Sigrún Hólm Þorleifsdóttir, formaður stjórnar Þjónustusamfélagsins á Héraði, og Heiður Vigfúsdóttir starfsmaður félagsins sem gerðu grein fyrir helstu áherslum og verkefnum Þjónustusamfélagsins á Héraði það sem af er árinu.
2.Greinargerð um sameiningu verkefna á sviði skógræktar
Fyrir liggur til kynningar Greinargerð starfshóps um sameiningu verkefna á sviði skógræktar, frá 24. september 2015. Jón Loftsson, skógræktarstjóri, mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir innihaldi hennar.
Fyrir liggja fundargerðir og fleiri gögn vegna tillagna að umsóknum í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða og uppbyggingu áfangastaða ferðamanna í sveitarfélaginu.
Atvinnu- og menningarnefnd tekur undir fyrirliggjandi tillögur og leggur til að sótt verði um styrki í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða til eftirfarandi verkefna: Stórurð, Fardagafoss og Selskóg.
Nefndin er einnig sammála um að skipaður verði vinnuhópur skipaður fulltrúum atvinnu- og menningarnefndar, umhverfis- og framkvæmdanefndar og Þjónustusamfélagsins á Héraði. Vinnuhópurinn hafi það hlutverk að greina og forgangsraða uppbyggingu áhugaverðra áfangastaða á Fljótsdalshéraði.
Fyrir liggur bréf, dagsett 12. júlí 2015, frá Öryrkjabandalagi Íslands um að tryggð séu aðgengileg salerni fyrir alla á viðburðum og hátíðum á vegum sveitarfélaga og ríkisins.
Málið var áður á dagskrá nefndarinnar 21. september 2015. Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 7. október að vísa erindinu aftur til atvinnu- og menningarnefndar til frekari skoðunar.
Atvinnu- og menningarnefnd felur starfsmanni að kanna framboð á ferðasalernum fyrir alla í sveitarfélaginu. Nefndin beinir því til þeirra sem standa fyrir hátíðum eða samkomum að tryggja að þessi mál séu ætíð í lagi.