57. fundur
20. október 2016 kl. 17:00 - 19:25 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
Árni Kristinssonformaður
Ágústa Björnsdóttirvaraformaður
Ester Kjartansdóttiraðalmaður
Páll Sigvaldasonaðalmaður
Karl Sigfús Lauritzsonvaramaður
Vífill Björnssonskipulags- og byggingarfulltrúi
Freyr Ævarssonstarfsmaður
Fundargerð ritaði:Vífill Björnssonskipulags- og byggingarfulltrúi
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að þremur liðum yrði bætt við, Áfangastaðir ferðamanna á Fljótsdalshéraði, Auglýsing um umferð á Fljótsdalshéraði og Plastpokalaust sveitarfélag og verða þeir liðir nr. 4, 5 og 6.
Lögð er fyrir nefndina rammaáætlun Umhverfis- og framkvæmda 2017.
Guðlaugur Sæbjörnsson sat undir þessum lið.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða fjárhagsáætlun fyrir Umhverfis- og framkvæmdasvið og leggur til við bæjarstjórn að sorphirðu- og förgunargjald ásamt gjaldskrá gámaplans hækki um 4%.
Anna María Arnfinnsdóttir sækir hér um stöðuleyfi fyrir torgsöluhús sem staðsetja á á lóð Miðvangs 31, landnúmer 157920. Meðfylgjandi er umsókn og greinargerð.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur Skipulags- og byggingarfulltrúa að leita umsagna HAUST, HEF, Vinnueftirlitssins og lögreglunnar á austurlandi og ræða við lóðarhafa.
Erindið verði lagt fram að nýju þegar umsagnir berast.
Lögð eru fram drög að umsókn í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða október 2016, unnin af Birni Jóhannssyni landslagsarkitekt FÍLA og Óðni Gunnari Óðinssyni atvinnu-, menningar- og íþróttafulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að sótt verði um styrk til eftirfarandi verkefna: - Stapavík - Ysti-Rjúkandi - Selskógur - Laugarvalladalur - Útsýnisstaður í Norðurbrún Fjarðarheiðar - Héraðssandar
Lagt er fyrir erindið Auglýsing um umferð á Fljótsdalshéraði fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að eftirfarandi bætist við 1.gr. samþykktar um Auglýsingu um umferð á Fljótsdalshéraði. Lagt er til að Útgarður njóti forgangs gagnvart hliðargötu og skal umferð frá henni víkja fyrir umferð um hana með biðskyldu. Lagt er til að Norðurtún njóti forgangs gagnvart hliðargötu og skal umferð frá henni víkja fyrir umferð um hana með biðskyldu.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd tekur vel í hugmyndina, starfsmanni falið að afla upplýsinga frá öðrum sveitarfélögum um hvernig staðið er að sambærilegum verkefnum.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.