Lögð er fram tillaga vinnuhóps um forgangsröðun uppbyggingu áhugaverðra áfangastaða á Fljótsdalshéraði. Nú fer að líða að því að auglýst verður eftir umsóknum um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða undir lok september. Tillaga vinnuhóps er því lögð fram til grundvallar þeirri ákvörðun er snýr að styrktarumsókn.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd þakkar hópnum fyrir vel unnin störf.
Samþykkt er sú forgangsröðun er kemur fram í skjali vinnuhópsins. Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til að sami háttur verði hafður við gerð umsóknar til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða eins og fyrir yfirstandandi ár.
Lögð er fram eftirlitsskýrsla HAUST, dagsett 19.9.2016. Reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Austurlands á opnum leiksvæðum innan þéttbýlis á Fljótsdalshéraði sem fór fram 26.ágúst 2016.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur Skipulags- og byggingarfulltrúa að leggja til úrlausnir á þeim atriðum sem skýrslan vísar í og leggja fyrir næsta fund Umhverfis- og framkvæmdanefndar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
4.Tilkynning um friðlýsingu hússtjórnarskólans á Hallormsstað
Í starfsleyfi urðunarstaðarins Tjarnarlandi kemur fram í grein 5.1 að Rekstraraðili skal hafa reglulegt eftirlit með umhverfis- og rekstrarþáttum sem geta valdið mengun eða losun efna út í umhverfið.
Lögð er fram eftirlitsskýrsla vegna sorpurðunarstaðins á Tjarnarlandi á Fljótsdalshéraði, dagsett 23.8.2016 til kynningar.
6.Umhverfis- og framkvæmdanefnd fjárhagsáætlun 2017
Lagt er fyrir erindi lóðarumsækjanda um skil á lóð. Umsækjandi fyrir hönd Strandatindar ehf. hefur óskað eftir að skila lóðinni Hamrar 2 sem honum var úthlutað á fundi Umhverfis- og framkvæmdanefndar nr. 52 þann 3.8.2016.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindi umsækjanda og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að setja lóðina á lista yfir lausar lóðir.
Nú fer að líða að því að auglýst verður eftir umsóknum um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða undir lok september.
Tillaga vinnuhóps er því lögð fram til grundvallar þeirri ákvörðun er snýr að styrktarumsókn.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd þakkar hópnum fyrir vel unnin störf.
Samþykkt er sú forgangsröðun er kemur fram í skjali vinnuhópsins.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til að sami háttur verði hafður við gerð umsóknar til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða eins og fyrir yfirstandandi ár.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.