Skólastjóri kynnti málið sem varðar aukna einstaklingsbundna stuðningsþörf. Um er að ræða þörf á 90% starfi stuðningsfulltrúa sem þegar hefur verið ráðið í til að bregðast við augljósum þörfum þeirra einstaklinga sem í hlut eiga. Aukin fjárþörf sem af þessu leiðir verður skoðuð með niðurstöðu á launalið stofnunarinnar 2015, sbr. bókun undir lið 1 hér að framan. Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Skólastjóri kynnti fræðslunefnd málið sem varðar aukna einstaklingsbundna stuðningsþörf. Um er að ræða þörf á 90% starfi stuðningsfulltrúa sem þegar hefur verið ráðið í til að bregðast við augljósum þörfum þeirra einstaklinga sem í hlut eiga.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn samþykkir að aukin fjárþörf sem af þessu leiðir verði skoðuð með niðurstöðu á launalið stofnunarinnar 2015, sbr. bókun undir lið 1 í fundargerð fræðslunefndar.