Undir þessum lið var farið yfir drög að umsögn um reglugerð um fráveitur og skólp. Bæjarráð samþykkir framlögð drög að umsögn og felur bæjarstjóra að senda umsögnina til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins innan tilskilins frests.
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
Lögð fram drög að viðauka við samstarfssamning um rekstur skíðasvæðisins í Stafdal, sem dagsettur var 20.12.2013.
Bæjarráð samþykkir viðaukann við samstarfssamninginn eins og hann liggur fyrir fundinum og felur fjármálastjóra að gera tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs 2017, til að mæta auknum útgjöldum.
Lögð er fram fyrir bæjarráð skýrsla sem tekin var saman fyrir Vegagerðina 2011 og fjallar um hugsanleg munnasvæði fyrirhugaðra Fjarðarheiðarganga. Bæjarráð ítrekar fyrri bókanir sínar og leggur áherslu á mikilvægi þess að sem fyrst verði ráðist í gerð jarðganga undir Fjarðarheiði, sem verði fyrsti áfangi í endanlegri tengingu Mið-Austurlands með jarðgöngum.