Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið og fór yfir nokkur rekstartengd mál.
Farið yfir reglur og viðmiðunartölur vegna heimildar sveitarfélaga til lækkunar fasteignaskatts til elli- og örorkulífeyrisþega. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðmiðunartölur ársins 2016 verði sem hér segir:
Hámark afláttar verði 63.500 Viðmiðunartala tekna hjá einstaklingi verði kr. 2.413.000 að lágmarki og að hámarki 3.167.000 Viðmiðunartala tekna hjá hjónum verði kr.3.395.000 að lágmarki og kr. 4.300.000 að hámarki.
Erindi varðandi greiðslur fyrir fundarsetu í stjórn Brunavarna á Héraði.
Bæjarráð samþykkir að greiða fundarsetuþóknun fulltrúa Fljótsdalshéraðs í stjórn Brunavarna á Héraði, fyrir fundi hennar á líðandi kjörtímabili, þar sem engar launagreiðslur eru á vegum byggðasamlagsins. Þóknunin fyrir fundi Brunavarna á Héraði verði eins og fyrir aðrar þriggja manna nefndir sveitarfélagsins. Kostnaður færist á lið 07-21, ( framlög til Brunavarna á Héraði ).
Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri fór yfir ýmis mál sem verið hafa til frekari skoðunar í sambandi við gerð fjárhagsáætlunar 2016 og ákveðið var að reikna betur út. Eins voru skoðaðar ýmsar forsendur, svo sem verðbólguspá og fl. Stefnt er á að bæjarráð afgreiði fjárhagsáætlunina á næsta fundi sínum til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarráð samþykkir að fela Óðni Gunnari Óðinssyni umboð og atkvæði Fljótsdalshéraðs á aðalfundi Héraðsskjalasafnsins og að Guðmundur Kröyer verði hans varamaður.
Ræddar hugmyndir að framtíðarnýtingu svæðisins og virkjun vatnsbóls sem þar er. Bæjarráð mælist til að HEF taki málið með vatnsbólið til skoðunar. Að öðru leyti hefur bæjarráð þegar vísað framtíðarnýtingu Grafarlands til skoðunar í starfshópi um greiningu og uppbyggingu ferðamannastaða.
Í lok fundar komu forsvarsmenn verkefnis um uppbyggingu ylstrandar við Urriðavatn til fundar við bæjarráð og kynntu stöðu þess.
Farið yfir reglur og viðmiðunartölur vegna heimildar sveitarfélaga til lækkunar fasteignaskatts til elli- og örorkulífeyrisþega. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að viðmiðunartölur ársins 2016 verði sem hér segir:
Hámark afláttar verði 63.500
Viðmiðunartala tekna hjá einstaklingi verði kr. 2.413.000 að lágmarki og að hámarki 3.167.000
Viðmiðunartala tekna hjá hjónum verði kr.3.395.000 að lágmarki og kr. 4.300.000 að hámarki.