Lagður fram til kynningar kaupsamningur um landspildu úr landi Grafar, sem nú hefur verið undirritaður. Hann byggir á samþykkt bæjarstjórnar frá 5. júní 2014.
Rætt um framtíðarnýtingu Grafarlands og fyrri áform um að nýta það sem útivistarsvæði og þá jafnvel til frekari skógræktar. Bæjarráð beinir því til starfshóps um greiningu og uppbyggingu ferðamannastaða á Fljótsdalshéraði að taka til skoðunar framtíðarnýtingu Grafarlands.
Farið yfir umræður fundar sem haldinn var með íbúum í Eiðaþinghá, varðandi framtíðarnýtingu húsnæðis baranaskólans og leikskólans á Eiðum. Einnig lögð fram áskorun frá kvenfélagi Eiðaþinghár til bæjarstjórnar um áframhaldandi aðgengi nærsamfélagsins að húsnæði barnaskólans. Bæjarráð samþykkir að málið verði áfram unnið í samræmi við verklagsreglur sem samþykktar voru á fundi bæjarstjórnar 20.06. 2012. Að öðru leyti er málinu vísað til næsta bæjarráðsfundar.
Lögð fram drög að endurnýjun samnings um framkvæmd sorpurðunar á Tjarnarlandi. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samráði við lögmann sveitarfélagsins.