Fyrir liggja ályktanir frá aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi árið 2016. Málinu vísað frá bæjarráði 17. október 2016 til kynningar og umfjöllunar.
Fyrir liggur til kynningar viljayfirlýsing Mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Fljótsdalshéraðs um uppbyggingu menningarhúss á Egilsstöðum, sem undirrituð var 16. október 2016. Málið var á dagskrá bæjarstjórnar 19. október 2016.
Atvinnu- og menningarnefnd fagnar undirritun viljayfirlýsingarinnar vegna uppbyggingar menningarhússins. Málið að öðru leyti lagt fram til kynningar.
Fyrir liggur greinargerð um framtíð ferðaþjónustunnar á Íslandi árið 2030, með áhættugreiningu og sviðsmyndum.
Atvinnu- og menningarnefnd tekur undir með skýrsluhöfundum um nauðsyn þess að auka hlutdeild sveitarfélaganna í tekjum af ferðamönnum til þess að þau geti staðið myndarlega að uppbyggingu sinna innviða.
Málinu vísað frá bæjarráði 17. október 2016 til kynningar og umfjöllunar.
Lagt fram til kynningar.