Fyrir liggur umsókn um styrk til flutnings tónlistar í Dvalarheimili aldraðra á aðventunni, dagsett 27. október 2016, frá Erlu Dóru Vogler.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn að verkefnið verði styrkt um kr. 60.000 sem tekið verði af lið 0589.
Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að verkefnið verði styrkt um kr. 60.000 sem tekið verði af lið 0589.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.