Ormsteiti 2018

Málsnúmer 201801076

Atvinnu- og menningarnefnd - 62. fundur - 22.01.2018

Starfsmaður og Aðalheiður gerðu grein fyrir vinnu starfshóps sem í lok síðasta árs var falið að gera tillögur að breyttu fyrirkomulagi Ormsteitis.

Málið áfram í vinnslu.

Atvinnu- og menningarnefnd - 63. fundur - 12.02.2018

Fyrir liggja til kynningar minnispunktar frá fundi starfshóps, 5. febrúar 2018, sem falið var að gera tillögur að breyttu fyrirkomulagi Ormsteitis.

Atvinnu- og menningarnefnd líst vel á þær áherslur sem fram koma í punktunum.

Málið er í vinnslu.

Atvinnu- og menningarnefnd - 66. fundur - 26.03.2018

Málið var síðast á dagskrá nefndarinnar 12. febrúar 2018.

Í vinnslu.

Atvinnu- og menningarnefnd - 67. fundur - 09.04.2018

Fyrir liggur fundargerð starfshóps sem hafði það hlutver að gera tillögu að breyttu fyrirkomulagi Ormsteitis, dagsett 5. apríl 2018.

Í tillögum starfshópsins kemur fram að tímabært sé að hvíla Ormsteiti, amk tímabundið og að auglýst verði eftir tillögum frá aðila eða aðilum sem standa vilja fyrir hátíð, viðburði á Fljótsdalshéraði sem höfði til allra íbúa sveitarfélagsins, ungra sem aldinna. Með slíku fyrirkomulagi er þess vænst að leysa megi úr læðingi nýjar og áhugaverðar hugmyndir sem og frumkvæði einstaklinga eða félagasamtaka.

Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að á þessu ári verði Ormsteiti haldið með nokkuð svipuðu fyrirkomulagi og áður. En tillögur starfshópsins komi til framkvæmda til og með árinu 2019. Auglýst verði eftir áhugasömum aðilum haustið 2018 sem vilja stjórna og reka hana, fyrst árið 2019.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Atvinnu- og menningarnefnd - 69. fundur - 07.05.2018

Fyrir liggja þrjár umsóknir um framkvæmdastjóra Ormsteitis sem auglýst var með fresti til og með 5. maí 2018.

Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að gengið verði til samninga við Menningarsamtök Héraðsbúa.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Atvinnu- og menningarnefnd - 70. fundur - 22.05.2018

Fyrir liggja drög að samningi við Menningarsamtök Héraðsbúa um Ormsteiti 2018.

Atvinnu- og menningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi við Menningarsamtök Héraðsbúa með áorðnum breytingum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.