Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdarnefnd og leggur áherslu á að forstöðumenn stofnana bregðist við þeim athugasemdum sem eftirlitsaðilar gera hverju sinni.
Sverrir Gestsson fylgdi úttekt vinnueftirlits eftir. Lögð áhersla á að bætt verði úr því sem gerðar eru athugasemdir við innan settra tímamarka. Málið komi aftur á dagskrá þegar vinnueftirlitið hefur yfirfarið úrbætur. Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdarnefnd leggur áherslu á að forstöðumenn stofnana bregðist við þeim athugasemdum sem eftirlitsaðilar gera hverju sinni.
Að öðru leyti lagt fram til kynningar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.