Erindi í tölvupósti dagsett 24.11.2014 þar sem Þorsteinn Ólafs f.h. VBS eignasafns hf. kt.621096-3039 óskar eftir endurnýjun á lóðarleigusamningi um lóðina Skógarlönd 3, en samningurinn rann út árið 2012.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að kalla eftir afstöðu VBS eignasafns hf. um málið í ljósi umræðna um mögulega höfnun á endurnýjun lóðarsamnings.
Erindi í tölvupósti dagsett 24.11.2014 þar sem Þorsteinn Ólafs f.h. VBS eignasafns hf. kt.621096-3039 óskar eftir endurnýjun á lóðarleigusamningi um lóðina Skógarlönd 3, en samningurinn rann út árið 2012. Málið var áður á dagskrá 10.12.2014. Fyrir liggja gögn til upplýsingar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til við bæjarstjórn að erindi VBS eignasafns þar sem óskað er eftir endurnýjun á lóðarleigusamningi vegna Skógarlanda 3C verði hafnað og fasteignagjöld sem innheimt hafa verið af lóðinni frá því lóðarleigusamningur rann út, verði endurgreidd.
Erindi í tölvupósti dagsett 24.11. 2014 þar sem Þorsteinn Ólafs f.h. VBS eignasafns hf. kt.621096-3039 óskar eftir endurnýjun á lóðarleigusamningi um lóðina Skógarlönd 3 C, en samningurinn rann út árið 2012. Málið var áður á dagskrá 10.12. 2014. Fyrir liggja gögn til upplýsingar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að erindi VBS eignasafns, þar sem óskað er eftir endurnýjun á lóðarleigusamningi vegna Skógarlanda 3 C, verði hafnað og að fasteignagjöld sem innheimt hafa verið af lóðinni frá því lóðarleigusamningur rann út, verði endurgreidd.
Lagt er fyrir nefndina bréf frá Jónatansson&Co, lögfræðistofu, efni bréfs: Höfnun Fljótsdalshéraðs á beiðni VBS eignasafns hf. um endurnýjun lóðarleigusamnings vegna Skógalanda 3c þann 6.maí 2015.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að kalla eftir afstöðu VBS eignasafns hf. um málið í ljósi umræðna um mögulega höfnun á endurnýjun lóðarsamnings.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.