Fyrir liggja hugmyndir að starfi tómstunda- og forvarnafulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Íþrótta og tómstundanefnd er sammála því að þörf sé á sérstökum tómstunda og forvarnafulltrúa í samræmi við fyrirliggjandi greinargerð. Starfið verði auglýst eins fljótt og hægt er og leggur nefndin til að hann hefji störf um næstu áramót.
Fyrir liggja hugmyndir að starfi tómstunda- og forvarnafulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn tekur undir með íþrótta- og tómstundanefnd um að þörf sé á sérstökum tómstunda- og forvarnafulltrúa í samræmi við fyrirliggjandi greinargerð. Bæjarstjórn samþykkir að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2015 áður en starfið verður auglýst.
Á fundi íþrótta- og tómstundanefndar var kynnt ráðning Öddu Steinu Haraldsdóttur í starf tómstunda- og forvarnafulltrúa hjá Fljótsdalshéraði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn bíður Öddu Steinu velkomna til starfa og væntir mikils af henni í nýju starfi tómstunda- og forvarnafulltrúa.
Málið er í vinnslu.