Geymslusvæði fyrir moltu. Ósk Fljótsdalshéraðs um undanþágu frá starfsleyfi vegna moltugeymslu á Tjarnarlandi.
Umhverfis- og héraðsnefnd felur verkefnastjóra umhverfismála að sækja um undanþágu samhliða svörum við erindi Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins sem óskað er eftir í dagskrárlið nr. 13 á fundinum.
Ósk Fljótsdalshéraðs um undanþágu frá starfsleyfi vegna moltugeymslu á Tjarnarlandi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu umhverfis- og héraðsnefndar felur bæjarstjórn verkefnastjóra umhverfismála að sækja um undanþágu samhliða því að veita svör við erindi Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, sem óskað er eftir í dagskrárlið nr. 13 í fundargerð skipulags- og mannvirkjanefndar.
Fyrir liggur afrit af umsögn HAUST til Umhverfisstofnunar vegna starfsleyfisumsóknar fyrir moltugeymslu á Tjarnarlandi.
Lagt fram til kynningar