Félagsmálanefnd

115. fundur 22. apríl 2013 kl. 10:30 - 12:30 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Sigrún Harðardóttir formaður
  • Guðmunda Vala Jónasdóttir varaformaður
  • Baldur Pálsson aðalmaður
  • Halldóra Sigríður Árnadóttir aðalmaður
  • Guðrún Frímannsdóttir félagsmálastjóri
  • Arnbjörg Sveinsdóttir aðalmaður
Fundargerð ritaði: Guðrún Frímannsdóttir félagsmálastjóri

1.Reglur um húsnæðisúrræði og þjónustu við fatlað fólk á eigin heimilum

Málsnúmer 201304093

Drög að reglum um húsnæðisúrræði og þjónustu við fatlað fólk á eigin heimilum hjá félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs lagðar fyrir og samþykktar.

2.Barnaverndarmál

Málsnúmer 1301119

Niðurstaða samkvæmt bókun í málinu

3.Barnaverndarmál

Málsnúmer 1302176

Niðurstaða samkvæmt bókun í málinu

4.Drög að fjárhagsáætlun 2014

Málsnúmer 201304080

Lögð fram tillaga að drögum að fjárhagsáætlun Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2014. Forgangsverkefni vegna nýframkvæmda og stærri viðhaldsverkefna sem nefndin sér ástæðu til að hrinda í framkvæmd á komandi ári eru viðtalsherbergi í mann- og geðræktarmiðstöðinni Ásheimum auk endurbóta og viðhalds á Stólpa. Kostnaðaráætlun vegna þessara verka er í höndum framkvæmdasviðs sveitarfélagsins. Tillögu fjárhagsáætlunar vísað til afgreiðslu bæjarráðs.

5.Þjónustusamningur við Sundabúð

Málsnúmer 201304091

Samningur dagsettur 10. apríl 2013 með vísan til 25. gr. laga um málefni fatlaðra nr. 59 / 1992 með síðari breytingum og VII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40 /1991 með síðari breytingum á milli Vopnafjarðarhrepps f.h. Sundabúðar og Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs, kynntur nefndinni. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2013 til 31. desember 2013.

6.Liðveisla/ NPA þjónusta

Málsnúmer 201302105

Samningur um notenda stýrða persónulega aðstoð (NPA) dagsettur 21. mars 2013 með vísan til laga um málefni fatlaðs fólks nr. 59 / 1992 með síðari breytingum og VII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40 /1991 með síðari breytingum á milli Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs og einstaklings búsettum á þjónustusvæðinu er kynntur nefndinni. Samningurinn gildir frá 1. apríl 2013 til 31. desember 2013

7.Fundargerð framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu Austurlands

Málsnúmer 201303091

Fundargerð framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu Austurlands lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:30.