Haddur Áslaugsson umsjónarmaður tölvumála sat fundinn undir þessum lið. Farið yfir verkefnin sem eru í vinnslu og stöðu þeirra. Einnig skoðuð tillaga að áfanga sem fara má í árið 2018. Að lokinni umræðu um málið var samþykkt að sækja um styrk fyrir ljósleiðarlögn frá Egilsstöðum og út Eiðaþinghá. Starfsmönnum falið að vinna áfram að styrkumsókn í Fjarskiptasjóð vegna þessa verkefnis.
Farið yfir umræðuefni fyrir fund um samstarfsmál sem haldinn verður með fulltrúum annarra sveitarfélaga á þjónustusvæði félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs síðar í dag.