Lagður fram lánasamningur nr. 1909-51 við Lánasjóð sveitarfélaga upp á kr. 100 milljónir, sem er í samræmi við fyrri kynningar í bæjarráði. Þetta er að stærstum hluta samkvæmt lántökuáformum í fjárhagsáætlun ársins 2019. Fjármálastjóra falið að leggja fram viðauka á næsta bæjarstjórnarfundi upp á 30 milljónir kr. vegna aukningar á lántökuheimild ársins 2019, til fjármögnunar framkvæmda. Samþykkt samhljóða.
Björn Ingimarsson bæjarstjóri kynnti drög að erindisbréfi fyrir starfshóp um frístundastarf, sem skipaður hefur verið. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að erindisbréfi og felur bæjarstjóra að koma því í hendur starfshópsins.
Lagt fram erindi þar sem kannaður er áhugi sveitarfélagsins til kaupa á íbúðarhúsnæði til útleigu. Bæjarstjóra falið að fara yfir þörfina, svo sem með starfsmönnum félagsþjónustunnar.
Farið yfir drög að skipulagi vegna viðveru starfsmanna og kjörinna fulltrúa í Miðvangi 31 út október 2019. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi skipulag, en viðkomandi aðilar verða að útvega varamenn fyrir sig ef þeir geta ekki mætt á tilteknum dögum.
6.Samráðsgátt - Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins í málefnum sveitarfélaga, S-206/2019
Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins í málefnum sveitarfélaga, S-206/2019. Umsagnarfrestur er til 10. september. Farið yfir nokkra liði áætlunarinnar og stefnt að því að skila umsögn eftir fund bæjarráðs 2. sept. nk.