Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri fór yfir nokkur mál tengd rekstri og fjármálum sveitarfélagsins. Einnig var rædd staða mála varðandi háskólasetur Austfjarða.
2.Fundargerð 854.fundar Sambands Íslenskra sveitarfélaga.
Fyrir liggur rekstraráætlun HSA 2018. Samkvæmt henni kemur fram að framlög ríkisins, samkvæmt drögum að fjárlögum, ná ekki að dekka bráðnauðsynlegan rekstrarkostnað. Bæjarráð skorar á nýja ríkisstjórn við gerð nýrra fjárlaga að auka framlög til heilbrigðisstofnanna út um land, þannig að þær geti sinnt þjónustu við íbúa landsins.
Lagt fram til kynningar svarbréf frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu dags. 23.11., vegna fyrirspurnar um vegaframkvæmdir í botni Skriðdals og um Öxi.
Til fundarins mætti Gunnar Gunnarsson frá Ungt-Austurland og kynnti frekar erindi félagsins varðandi styrkbeiðni til Fljótdalshéraðs.
Gunnar kynnti þau verkefni sem félagið hyggst leggja áherslu á næsta ár, sem eru hvatning til ungs fólks til að taka þátt í sveitarstjórnarmálum og í öðru lagi að halda starfamessu.
Óskað var eftir að félagið skili inn með umsókninni fjárhagsáætlun yfir þessi verkefni, þar sem fram komi betri upplýsingar um kostnað og fjármögnun.
Að lokinni yfirferð yfir málið var Gunnari þökkuð koman og veittar upplýsingar.
Lögð fram erindi varðandi mögulega leigu á húsnæðinu að Miðvangi 31. Bæjarráð óskar frekari upplýsinga frá umsækjendum og bæjarstjóra falið að kalla eftir þeim fyrir næsta fund.
Einnig var rædd staða mála varðandi háskólasetur Austfjarða.