Á fundinn undir þessum lið mætti Davíð Þór Sigurðarson, formaður Íþróttafélagsins Hattar, og kynnti fyrir íþrótta- og tómstundanefnd viðbyggingu Íþróttamiðstöðvarinnar á Egilsstöðum og ferlið í kringum verkefnið.
Nefndin óskar Íþróttafélaginu Hetti og samfélaginu öllu til hamingju með þessi tímamót íþróttastarfs í sveitarfélaginu.
Ungmennaráð fagnar því að stórt skref hafi verið tekið í uppbyggingu íþróttastarfs í sveitarfélaginu og óskar Íþróttafélaginu Hetti og íbúum Fljótsdalshéraðs til hamingju með þennan stóra áfanga.
Björn fór yfir samkomulag við Arkitektastofuna OG sem undirritað hefur verið vegna uppbyggingar íþróttamiðstöðvarinnar og hönnun og breytinga innanhúss. Bæjarráð staðfestir fram lagða samninga. Einnig ræddar hugmyndir að endurbótum innanhúss og fyrirhugaða vinnu við þær útfærslur.
Nefndin óskar Íþróttafélaginu Hetti og samfélaginu öllu til hamingju með þessi tímamót íþróttastarfs í sveitarfélaginu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.